EFNA2AE05

Almenn efnafræði

Áfangalýsing:

Farið verður í lotukerfið og rafeindaskipan. Vel verður þjálfuð færni í að stilla efnajöfnur.  Einnig verða tekin fyrir hugtökin efnatengi (sterk og veik), massavarðveisla, einföld hlutföll, formúlumassar, einingin mól, leysni og mólstyrkur. Þá verður fjallað um gas og gastegundir. Auk þessa verður fjallað um efnahvörf svo sem um hlutföll efna í þeim og orkuskipti.

 

Forkröfur: NÁTV1IN05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu atóma, jóna og sameinda.
  • efnatáknum og lotukerfinu.
  • rafeindaskipan og efnatengjum.
  • nafngiftarreglum ólífrænna efna.
  • efnajöfnum og efanhvörfum.
  • mólhugtakinu.
  • mólstyrk efna í vatnslausn.
  • gaslögmálinu og hagnýtingu þess.
  • magnútreikningum í tengslum við efnahvörf.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota lotukerfi til að finna upplýsingar um uppbyggingu atóma og jóna og massa þeirra.
  • flokka efni sem efnablöndu eða hreint efni (frumefni, sameindaefni eða jónefni) og greina efnatengi í jónatengi og samgild tengi.
  • gefa efnum nafn út frá efnaformúlu þeirra og öfugt.
  • spá fyrir um myndefni einfaldra sýru-basa hvarfa, útfellingahvarfa og oxunar-afoxunar efnahvarfa.
  • setja upp efnajöfnu og stilla hana.
  • beita hlutfallareikningi í tengslum við magnútreikninga í efnahvörfum.
  • reikna út mólstyrk efna í vatnslausnum.
  • nota gasjöfnuna við útreikninga t.d. á mólafjölda, þrýstingi, rúmmáli og hita, bæði eina sér og í tengslum við stillta efnajöfnu.
  • framkvæma verklegar æfingar, vinna úr niðurstöðum og skrifa skýrslur.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • takast á við frekar nám í efnafræði og öðrum raungreinum.
  • meta hvort niðurstöður mælinga og útreikninga séu raunhæfar.
  • gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina.
  • skiptast á skoðunum við aðra um mælingar og niðurstöður og ræða og útskýra hugmyndir.
  • viðhafa nákvæmni og skipuleg vinnubrögð við mælingar og tilraunavinnu sem og við gagnaúrvinnslu og skýrslugerð.
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.

 

Áfangakeðja í raungreinum