Upplýsingar fyrir fjarnema

Verið velkomin í fjarnám í MÍ

Allir bóknámsáfangar sem kenndir eru í MÍ eru  einnig í boði í fjarnámi. Í fjarnámi er notað fjarkennslukerfið Moodle en þar setja kennarar inn námsáætlanir og verkefni. Nemendur geta skilað inn úrlausnum verkefna sinna þar sem og tekið gagnvirk próf. Fjarnámið fer því alfarið fram á netinu.

Í kennslu við Menntaskólann á Ísafirði er lögð áhersla á leiðsagnarnám sem felst í því að nemendur fá stöðugar upplýsingar um stöðu sína í námi til að geta bætt sig. Leiðsagnarmat (e. Formative Assessment) er kennsluaðferð þar sem nemendur eru metnir jafnt og þétt alla önnina með það að markmiði að nota niðurstöðurnar til að bæta námsárangur og kennslu. Leiðsagnarmatið er námsmat til að læra af og getur bæði verið skriflegt og munnlegt. Kennarinn gefur nemandanum leiðandi umsögn sem nýtist nemendum við áframhaldandi nám.

Hverri önn er skipt niður í þrjár námslotur. Eftir tvær fyrstu loturnar er gefið lotumat.

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á fjarnam@misa.is 


Áfangar í boði

Áfangaframboð næstu annar er að finna hér: Áfangar í boði

 

Skráning

Skráning í fjarnám fer fram í INNU hér: Skráning í fjarnám 

Skráning fyrir vorönn 2024 er frá 13. október til 3. janúar 2024. 

 

Moodle 

Við kennslu í fjarnámi notum við í MÍ námsumhverfið Moodle. Allir fjarnemar sem hafa borgað greiðsluseðil fá sendan Moodle-aðganga í tölvupósti áður en önnin hefst. Ef þú hefur verið skráður í fjarnám hjá okkur áður notar þú sama aðgang. Ef aðgangurinn er glataður er hægt að hafa samband við ritara skólans á netfangið elin@misa.is.

Leiðbeiningar við innskráningu í Moodle

Leiðbeiningar við innskráningu í Moodle Mobile

 

Microsoft Offce 365

Nemendur í fjarnámi fá aðgang að Microsoft Office pakkanum hjá skólanum og geta notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann.

Leiðbeiningar við uppsetningu á Office 365

 

INNA

INNA er námsumsjónarkerfi sem allir framhaldsskólar á Íslandi nota. Í INNU getur þú séð hvaða áfanga þú ert skráð/ur í, einkunnir, lotumat o.fl. Til að skrá sig inn á INNU þarf að nota rafræn skilríki eða Íslykil.

 

Verðskrá

Fjarnemar fá sendan greiðsluseðil í heimabanka fyrir fjarnámsgjöldum. Ef nemandi er ekki orðinn 18 ára fer greiðsluseðill í heimabanka forráðamanns.

Verðskrá:

  • Skráningargjald er 6.000kr á önn
  • Fyrsti áfangi 13.000kr
  • Annar áfangi 13.000kr
  • Þriðji áfangi 13.000kr

Fjarnámsgjöld eru ekki endurgreidd.

 

Ráðgjöf við val á áföngum og mat á fyrra námi

Hægt er að fá ráðgjöf við val á áföngum og námsmat hjá áfanga- og fjarnámsstjóra og náms- og starfsráðgjafa.  Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn sem varða nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra. Nemendur sem eru skráðir í fjarnám í MÍ fá fyrra nám sitt metið án aukakostnaðar. Nemendur sem ekki eru skráðir nemendur við skólann greiða 10.000 krónur fyrir námsmat.

 

Náms- og starfsráðgjöf

Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafi skólans er Erna Sigrún Jónsdóttir (erna@misa.is). Möguleiki er að fá viðtöl við hana eftir samkomulagi. Tímapöntun fer fram hér og geta þau farið fram á skrifstofu náms- og starfsráðgjafa, í síma eða á Teams.

 

Nemendur með námsörðugleika

Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita. Þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda, t.d. vegna lesblindu, þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.

 

Nokkur praktísk atriði

Mikilvægt er að fara nokkrum sinnum í viku inn á Moodle til að fylgjast með því sem fram fer í áfanganum. Á Moodle er m.a. að finna námsáætlun áfanga og mikilvægt að nemendur kynni sér hana vel í upphafi annar. Í námsáætlun koma m.a. fram upplýsingar um:

  • efni áfangans
  • markmið
  • áætlun um yfirferð
  • námsmat
  • námsgögn

Í MÍ er lögð áhersla á leiðsagnarnám þar sem nemendur eru metnir jafnt og þétt alla önnina með það að markmiði að bæta námsárangur og kennslu. Nemendur þurfa því að vinna jafnt og þétt yfir önnina. Námsmat í fjarnámi er fjölbreytt og getur t.a.m. falið í sér verkefnaskil, skýrsluskrif, hlutapróf, ritgerðir og fleira. Engin lokapróf eru í fjarnámi og enginn einn stakur námsmatsþáttur má gilda meira en 40%.

Hverri önn er skipt niður í þrjár námslotur. Eftir fyrstu tvær loturnar er gefið lotumat. Á skóladagatalinu okkar má finna allar mikilvægar dagsetningar skólaársins.

 

 Mikilvægt að hafa í huga: 

  • Fjarnám er sjálfsnám undir handleiðslu kennara! Það krefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda.
  • Námsáætlun er á Moodle. Hana skulu nemendur kynna sér vel í upphafi annar.
  • Mikilvægt er að nemendur í fjarnámi geri sér grein fyrir því að fjarnám felur í sér aukna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Mikilvægt er að lesa vel allar leiðbeiningar og fyrirmæli, virða tímasetningar og leysa þau verkefni sem fyrir eru lögð.
  • Nemendur þurfa að fara reglulega (nokkrum sinnum í viku) inn á Moodle til að fylgjast með því sem fram fer í áfanganum. 
  • Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita. 
  • Þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda, m.a. vegna lesblindu, þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.
  • Nemendur þurfa að láta kennara og áfangastjóra vita vilji þeir hætta í áfanga.
  • Nemendur þurfa að hafa aðgang að nettengdri tölvu. Nemendur þurfa að hafa lágmarkskunnáttu í ritvinnslu og tölvunotkun og hafa einhverja æfingu í að nota veraldarvefinn. Nemendur þurfa að hafa sitt eigið netfang. 
  • Nemendur þurfa að hafa tíma til að stunda fjarnámið.

 

 

Hvenær byrjar fjarnámið?

Skólastarf hefst á vorönn 2024 þann 4. janúar. Hægt verður að nálgast bókalista í INNU. 

Við í MÍ hvetjum þig til að byrja fjarnámið strax af krafti og óskum þér góðs gengis í náminu. Endilega hafðu samband við okkur ef eitthvað er, spurningum um fjarnám skal beina til áfanga- og fjarnámsstjóra á netfangið fjarnam@misa.is.