Foreldraráð

Foreldraráð MÍ

Foreldraráð Menntaskólans á Ísafirði var stofnað þann 6. desember 2001. Ein af helstu ástæðunum fyrir stofnun þess var hækkun sjálfræðisaldurs úr 16 árum í 18 ár.  Félagar eru þeir foreldrar eða forráðamenn nemenda sem eru undir 18 ára aldri en foreldrum eldri nemenda er einnig frjálst að gerast félagar. 

Samkvæmt 50. grein í lögum um framhaldsskóla frá 2008 nr. 92 segir: 

"Við hvern framhaldsskóla skal starfa foreldraráð. Skólameistari boðar til stofnfundar þess. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og í samstarfi við skólann efla samstarf foreldra og forráðamanna ólögráða nemenda við skólann. Félagsmenn geta verið foreldrar nemenda við skólann.

Kjósa skal í stjórn ráðsins á aðalfundi þess. Foreldraráð tilnefnir einn áheyrnarfulltrúa í skólanefnd. Foreldraráð setur sér starfsreglur."

 

Markmið foreldraráðsins eru m.a.:

  • að efla samstarf foreldra /forráðamanna og starfsfólks/nemenda skólans
  • að styðja heimili og skóla í að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði
  • að koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál
  • að vera samstarfsvettvangur foreldra / forráðamanna innbyrðis standa vörð um réttindi nemenda til menntunar og aukins þroska
  • að veita skólanum lið, svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði samkvæmt kröfum hvers tíma

Foreldraráð er skipað 5 fulltrúm, 4 foreldrum/forráðamönnum og 1 kennara sem valinn er á kennarafundi. Formaður er kosinn sérstaklega en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

 

Foreldraráð MÍ veturinn 2023-2024 skipa:

Sæbjörg Freyja Gísladóttir (formaður)

Aðalheiður Jóhannsdóttir (ritari)

María Lárusdóttir (áheyrnarfulltrúi í skólaráði)

Tuuli Raehni (meðstjórnandi)

Heiðar Birnir Torleifsson (meðstjórnandi)

Hafdís Gunnarsdóttir (meðstjórnandi)

Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir (fulltrúi kennara)

Erna Sigrún Jónsdóttir (varamaður)

 

Fundargerðir foreldraráðs

Foreldraráðsfundur 27.11.23 

Foreldraráðsfundur 17.01.24

 

Gagnlegir tenglar fyrir foreldra:

Virkir foreldrar betri framhaldsskóli

Facebook síða foreldraráðs Menntaskólans á Ísafirði

Samtökin heimili og skóli