HEIM2IH05

Inngangur að heimspeki

Áfangalýsing:

Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannkynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er þátttaka í þeim mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.

 

Forkröfur: FÉLV1IF05

 

Markmið:

 Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum heimspekingum og heimspekikenningum frá Forn-Grikklandi til okkar tíma.
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar.
  • undirstöðuatriðum heimspekilegrar hugsunar.
  • lestri heimspekitexta.
  • heimspekilegum samræðum.

 Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa heimspekitexta.
  • endursegja og skýra heimspekitexta.
  • beita gagnrýninni hugsun.
  • meta eigin rök og annarra.
  • tjá sig heimspekilega og hlusta á aðra.
  • tengja heimspeki við eigin reynslu og veruleika.

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt.
  • geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins.
  • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
  • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt.
  • skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í.
  • beita heimspekilegum hugmyndum til að leysa úr siðgerðilegum vandamálum.

 

 

 

Áfangakeðja í félagsgreinum