ÍSLE2MG05

Íslenska - mál og menningarsaga

Áfangalýsing:

Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Enn fremur þróun tungumálsins. Þeir lesa ólíka texta frá ýmsum tímabilum. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu og ritun. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í úrvinnslu heimilda um sérhæft efni.

 

Forkröfur: ÍSLE2BR05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fornum hugmyndaheimi norrænna manna, norrænum goðum og sögum af þeim.
  • sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál.
  • mikilvægi vandaðra vinnubragða við úrvinnslu heimilda.
  • fjölbreyttum tegundum texta.
  • hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði í umfjöllun um bókmenntir

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota fræðibækur og fræðigreinar við gerð heimildaritgerða og verkefna.
  • vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt.
  • nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun.
  • tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum og rökstuddum hætti.
  • lesa sér til gagns og gamans mismunandi tegundir texta og fjalla um inntak þeirra.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja mat á gildi heimilda og vinna úr þeim með skipulögðum hætti.
  • greina og túlka bókmenntatexta og færa rök fyrir skoðunum sínum jafnt munnlega sem skriflega.
  • skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli.
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra

  

Áfangakeðja í íslensku