STÆR2JA05

Jöfnur og algebra

Áfangalýsing

Í áfanganum er unnið með liðun, þáttun, jöfnu beinnar línu, 2. stigs jöfnur, fleygboga og talningarfræði, margliður og ójöfnur, veldi og rætur, föll, gröf og hagnýtingu hornafalla.

 

Forkröfur: STÆR2GS05

 

Markmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum.
  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi.
  • jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum.
  • veldum, rótum og veldareglum.
  • margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra.
  • beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa.
  • föllum og hnitakerfi.
  • hagnýtingu hornafalla.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • leysa jöfnur og ójöfnur.
  • beita veldareglum og meðhöndla rætur og brotna veldisvísa.
  • finna núllstöðvar margliða, deila margliðum og þátta þær.
  • meðhöndla föll og gröf.
  • hagnýta hornaföll.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • geta sett sig inn í og túlkað útskýringar og röksemdir annarra af virðingu.
  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt.
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna.
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni.
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra. þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.

 

 Áfangakeðja í stærðfræði