STÆR2VH05

Stærðfræði - vigrar og hornaföll

Áfangalýsing

Í áfanganum er farið í vigra, hornaföll, þríhyrninga, bogamál á hring, jöfnu hrings, fleygboga, keilusnið og sporbauga en einnig er fjallað um hagnýtingu þekkingar á hornaföllum.  Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur og beita þeim.

 

Forkröfur: STÆR2JA05

 

Markmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • vigrum, stefnuvigrum, einingarvigrum, samsíða vigrum, þvervigrum og innfeldi.
  • hornaföllum, bogamáli og lotu í lotubundnum föllum.
  • sínus-, kósínus- og flatarmálsreglunni.
  • jöfnu beinnar línu, hrings, sporbaugs, fleygboga og breiðboga.
  • stikun hrings og línu og ofanvarp punkts eða vigurs á stefnda línu.
  • helstu hornafallajöfnum og sönnunum þeirra.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:  

  • nota reiknireglur fyrir vigurreikning í rétthyrndu hnitakerfi í tvívíðu rúmi.
  • geta breytt bogamáli í gráður og gráður í bogamál.
  • nota skilgreiningu hornafalla og helstu reglur í hornafallareikningi.
  • nota sínus, kósínus og flatarmálsregluna til að finna lengdir, horn og flatarmál í rétthyrndum, hvasshyrndum og gleiðhyrndum þríhyrningi.
  • finna lotu, útslag og hliðrun hornafalla og teikna gröf þeirra.
  • rita jöfnu línu út frá stikun línu og svo öfugt finna miðju og radíus hrings, sporbaugs, fleygboga eða breiðboga út frá jöfnu þeirra.
  • finna jöfnu hrings, sporbaugs og breiðboga út frá gefnum miðpunkti og radíus eða lengd stórás og skammás. 
  • leysa hornafallajöfnur.
  • sanna einfaldar reglur eins og sínus, kósínus og flatarmálsregluna

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
  • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstutt aðferðir sínar.
  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndar sínar og verk skilmerkilega á mæltu máli og myndrænt.
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi.
  • fylgja röksemdarfærslu í mæltu máli og texta og rakið sannanir í námsefninu.

 

 Áfangakeðja í stærðfræði