STÆR3ÁT05

Stærðfræði - ályktunartölfræði

Áfangalýsing

Fjallað er um nokkrar aðferðir sem notaðar eru til að draga tölfræðilegar ályktanir. Nemendur læra að draga ályktanir um þýði á grundvelli úrtaka, setja fram tilgátur og prófa þær. Farið verður yfir helstu líkindadreifingar, grunnatriði úrtaksfræða, úrtaksdreifingu, höfuðsetningu tölfræðinnar, öryggisbil, tilgátupróf, fylgnireikninga og aðhvarfsgreiningu.

 

Forkröfur: STÆR2LT05

 

Markmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • því hvernig vinna skal með gögn og reikna lýsistærðir.
  • helstu líkindadreifingum.
  • grunnatriðum úrtaksfræða.
  • höfuðsetningu tölfræðinnar.
  • öryggisbilum, öryggismörkum og öryggisstigum.
  • tilgátuprófum fylgni og einfaldri línulegri aðhvarfsgreiningu.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með gögn og draga ályktanir af þeim.
  • vinna með líkindadreifingar.
  • reikna öryggisbil.
  • setja fram tilgátur og framkvæma tilgátupróf.
  • túlka fylgnistuðla.
  • nýta tölfræðiforrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra ganga.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau.
  • geta hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu til að velja þær reikniaðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt.
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra viðfangsefna og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
  • skrá niður lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum.
  • geta meðtekið og túlkað útskýringar og röksemdir annarra í mæltu máli og í texta.
  • leysa stærðfræðileg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og í daglegu lífi með því að beita gagnrýninni og skapandi hugsun.

 

 Áfangakeðja í stærðfræði