Umsóknarfrestur vegna jöfnunarstyrks

7 okt 2020

Umsóknarfrestur vegna jöfnunarstyrks

Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk vegna haustannar 2020 er til 15.október næstkomandi.

Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum eða með íslykli á heimasíðu Menntasjóðs,  www.menntasjodur.is eða island.is.

 

Jöfnunarstyrkur (dreifbýlisstyrkur)

- er styrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu. Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skóla og eitt af grunnskilyrðum fyrir jöfnunarstyrk er að nemandi geti sýnt fram á tengsl við lögheimili sitt.

Námið verður að vera að lágmarki eins árs skipulagt nám við skóla sem fellur undir lög um framhaldsskóla/menntaskóla. Nemandi telst stunda reglubundið nám hafi hann gengið til prófs i a.m.k. 12 einingum á önn, ef um Fein-einingar er að ræða er lágmarkið 20 ein.

  • Námsmenn í sérnámi/iðnnámi geta átt rétt á bæði námslánum og jöfnunarstyrk. Námsmaður getur þó ekki fengið hvoru tveggja, jöfnunarstyrk og námslán, á sömu önn.
  • Hámarkslengd styrks er til fjögurra ára eða í átta annir.
  • Athugið að nemandi getur ekki fengið bæði jöfnunarstyrk og námslán á sömu önn.
  • Nemendur í launuðu starfsnámi eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.

Til baka