LÍFF3ÖR05

Líffræði - örverufræði

Áfangalýsing:

Í áfanganum er farið í grunnatriði örverufræði og staða örverufræðinnar innan náttúrufræðinnar skoðuð. Farið verður yfir flokkun örvera og einkenni í lífsstarfsemi þeirra s.s. æxlun og dreifingu. Helstu flokkar dreifkjörnunga eru kynntir. Frumatriði í veirufræði, s.s. staða veira í lífheiminum, gerð, fjölgun, áhrif veira á hýsla. Flokkun sveppa og dæmi um frumdýr og lífsferlar beggja hópa. Nemendur læra um mikilvægi örvera í náttúrulegum vistkerfum og notkun þeirra í iðnaði, rannsóknum og til lækninga. Gerð verður grein fyrri tjóni sem örverur valda mönnum (sjúkdómar) og umhverfi þeirra og mögulegum vörnum. Nemandinn kynnist vinnubrögðum á rannsóknarstofu eins og að vinna sterilt (dauðhreinsað), rækta og lita örverur og greina þær í smásjá. Sérstök áhersla er lögð á að tengja daglegt líf og umhverfi nemenda við námsefni örverufræðinnar ásamt nýjustu þekkingu á stofnum samkvæmt erfðaefni örveranna.

 

Forkröfur: LÍFF2LE05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • flokkun lífvera í dreifkjörnunga og heilkjörnunga og stöðu veira meðal lífvera.
  • uppbyggingu og helstu eiginleikum baktería, sveppa, frumvera og veira.
  • sögu örverufræði og helstu atriðum varðandi ræktun og varnir gegn örverum.
  • helstu aðferðum við sótt- og dauðhreinsun og helstu eiginleikum örvera varðandi efnaskipti, hita, súrefni, vatnsvirkni og sýrustig.
  • byggingu og eignleikum nokkrum af þeim ættkvíslum baktería sem tengjast sjúkdómum eða eru hagnýttar af manninum.
  • flokkun veira með tilliti til byggingar, erfðaefnis og eiginleika.
  • flokkun baktería samkvæmt Gram litun og samsetningu erfðaefnisins.

 Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • blanda næringaræti, dauðhreinsa það, hella á ræktunarskálar og vinna almennt með ræktun á sterilan hátt.
  • setja bakteríusýni á ræktunarskálar með ræktunarlykkju og að dreifa sýni á skál til að meta þéttleika baktería.
  • lesa af ræktunarskálum, fylgjast með lit og lögun þyrpinga og geta reiknað út þéttleika baktería miðað við þynningar.
  • Gram lita bakteríur.
  • þekkja helstu ættkvísla baktería og grunnupplýsingar um lögun og eiginleika þeirra.
  • lesa í yfirlitsmyndir um lífsferla örvera svo sem fjölgun baktería, innrásar- og fjölgunarferli veira og lífsferla sníkjudýra.
  • miðla upplýsingum til samnemenda um námsefnið með ýmsum hætti.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta og túlka upplýsingar um sjúkdóma og örverur og skilja helstu atriðin varðandi eðli sýkla, smitleiðir, hættu á smiti og eðlilegar varnir gegn smiti.
  • gera grein fyrir eðlilegri og góðri meðferð matvæla til að lágmarka hættu á matarsýkingum.
  • útskýra með dæmum muninn á helsu flokkum baktería og veira.
  • nýta sér fræðitexta úr ritrýndum heimildum um námsefnið á íslensku og ensku.
  • útskýra viðfangsefni áfangans með því að nota hugtök af nákvæmni.
  • taka þátt í rökræðum er lúta að viðfangsefni áfangans t.d. bólusetningum, smithættu og hagnýtingu örvera.
  • tengja örverufræði og almenna líffræði við daglegt líf og umhverfi.

 

Áfangakeðja í raungreinum