NÆRI2GR05

Næringarfræði

Áfangalýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og líkamsþjálfunar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið verður í uppbyggingu og samsetningu próteina, fitu og kolvetna. Fjallað verður um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Matseðlar metnir og samdir og reiknað næringargildi út frá töflum Ýmsir næringartengdir sjúkdómar ræddir. 

 

Forkröfur: Engar

 

Markmið:   

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:  

  • grundvallaratriðum í næringarfræði.
  • samspili næringar og heilsu.
  • helstu orkuefnum fæðunnar.
  • hlutverki fæðubótarefna sem hluta af fæðuinntöku.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • meta eigin orkubrennslu út frá viðurkenndum töflum.
  • meta eigin orkuþörf yfir ákveðinn tíma.
  • setja saman matseðla þar sem hollusta og næringargildi er haft að leiðarljósi.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • meta eigin neysluvenjur.
  • meta samspil orkuþarfar og orkuneyslu og geta brugðist við ef þetta jafnvægi raskast.
  • meta þörf fyrir neyslu fæðubótarefna.