EFNA3EJ05

Efnajafnvægi

Áfangalýsing:

Í þessum framhaldsáfanga í efnafræði verður byggt ofan á grunnatriði almennrar efnafræði. Helstu efnisatriði eru orka í efnahvörfum, virkjunarorka og hvarfhraði, efnajafnvægi, oxun-afoxun, hálfhvörf, oxunartölur, sýrur, basar og pH-gildi.

                            

Forkröfur: EFNA2AE05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orku í efnahvörfum, hvarfavarma, óreiðu og fríorku.
  • hraða og gangi efnahvarfa.
  • efnajafnvægi, jafnvægislögmálinu og jafnvægisföstum.
  • efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum.
  • efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi.
  • sjálfgengni efnahvarfa, Gibbs fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann.
  • Oxun-afoxun og rafefnafræði.
  • jafnvægi í sýru-/basalausnum, sjálfjónun vatns, jafnvægisfastanum Kv og pH.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með orkuhugtök og reikna út orkubreytingar í tengslum við efnahvörf.
  • nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrki til útreikninga og nota reglu Le Châtelier.
  • vinna með oxun og afoxun efna í tengslum við rafefnafræði.
  • vinna með útreikninga tengda sýrum og bösum og reikna pH-gildi lausna.
  • meðhöndla glervöru, efni og áhöld við tilraunir í efnafræði með eigin öryggi og annarra í huga.
  • framkvæma verklegar æfingar, vinna úr niðurstöðum og skrifa skýrslur.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér

  • takast á við frekar nám í efnafræði og öðrum raungreinum.
  • meta hvort niðurstöður mælinga og útreikninga séu raunhæfar.
  • gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina.
  • tengja efnafræðina við umhverfi sitt og sjá notagildi hennar.
  • skiptast á skoðunum við aðra um mælingar og niðurstöður og ræða og útskýra hugmyndir.
  • viðhafa nákvæmni og skipuleg vinnubrögð við mælingar og tilraunavinnu sem og við gagnaúrvinnslu og skýrslugerð.
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.

 

Áfangakeðja í raungreinum