ÍSLE3RS05

Íslenska - ritlist og skapandi skrif

Áfangalýsing:

Í áfanganum læra nemendur um mismunandi stílbrögð í ritlist auk þess sem þeir setja saman eigin texta undir leiðsögn kennara og rýna í verk annarra. Unnið er að því að auka bókmenntalegt læsi og sköpunargáfu með það að markmiði að koma afurð sinni á framfæri. Lögð er áhersla á að efla færni nemandans til að rýna í eigin verk og annarra og gera hann hæfari til allra handa ritsmíða, hvort heldur hagnýtra eða listrænna. Að áfanganum loknum ætti nemandinn að hafa öðlast aukið sjálfstraust á sviði sköpunar og læsis sem gerir honum kleift að vinna sjálfstætt að sinni list. Í lok áfangans skilar nemandi sjálfstæðu verkefni í skapandi skrifum.

 

Forkröfur: ÍSLE2MG05

  

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi stílbrögðum í ritlist.
  • mismunandi aðferðum í uppbyggingu og framsetningu ritsmíða.
  • ólíkum miðlunarleiðum til að koma verkum á framfæri.

 Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa mismunandi bókmenntir með það fyrir augum að efla eigin stílfærni.
  • greina á milli mismunandi stíla og bókmenntaforma.
  • greina þá þræði sem liggja á milli ólíkra bókmenntaforma.
  • skrifa mismunandi stíla eftir fyrirmælum kennara.
  • lesa verk annarra með gagnrýnu hugarfari hvað varðar málfar og framsetningu.
  • flytja eigið verk í áheyrn annarra.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leita sér innblásturs í mismunandi bókmenntagerðum.
  • sýna næmi fyrir vel unnum texta.
  • fullvinna eigið ritverk.
  • leggja gagnrýnið og uppbyggilegt mat á verk annarra.
  • koma eigin verki á framfæri.  

 

Áfangakeðja í íslensku