MYNL2FF05

Myndlist - formfræði og fjarvídd

Áfangalýsing:

Áfanginn miðar að því að nemandinn efli næmi sitt fyrir fjarvídd og myndbyggingu á tvívíðum fleti og dýpki skilning á grundvallaratriðum myndbyggingar, formfræði og hönnunar. Í áfanganum er skynjun á formum í umhverfinu efld og þrívíð tilfinning skerpt. Nemandinn gerir tilraunir með form, línur, fleti og áferð til að rannsaka ólíka myndbyggingu og læra undurstöðuatriði í fjarvíddarteikningu þar sem umhverfið er skoðað og útfært í fjarvídd. Áhersla lögð á að nemandinn prófi og kynnist mismunandi miðlum í vinnslu myndverka.

 

Forkröfur: SJÓN1LF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • forsendum myndbyggingar og fjarvíddar.
  • grundvallarreglum formfræði og fjarvíddar.
  • hlutverki forma, lína, lita og áferðar í myndverkum.
  • hvaða merkingu og áhrif ólík form og línur hafa í myndverki.
  • hvernig mismunandi miðlar og aðferðir hafa áhrif á útkomu myndverks.
  • hvernig myndbygging hefur áhrif á útkomu myndverks.
  • fagorðum.

 Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:  

  • teikna hluti í réttum hlutföllum í fjarvídd í einum, tveimur og þremur hvarfpunktum.
  • skyggja hluti út frá ákveðnu ljóshorni.
  • nota myndbyggingu, formfræði og fjarvídd í myndverki til að ná ákveðnum áhrifum þannig að gott jafnvægi sé milli einstakra þátta.
  • vinna með mismunandi miðla og nota mismunandi aðferðir við gerð myndverka.
  • skilgreina verk sín og tengja þau við fagorð og fjalla um þau.
  • útfæra og setja fram verkefni sín á frumlegan, skapandi og skipulegan máta.
  • beita táknfræðilegum rökum við umræðu um mögulega merkingu óhlutbundinna mynda.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • nýta formfræði, fjarvídd og myndbyggingu í sköpun myndverka.
  • vinna á persónulegan hátt og þróa eigin hugmyndir.
  • fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt með vísan í grundvallaratriði myndbyggingar og fjarvíddar.
  • meta myndbyggingarlega þætti í myndverkum annarra, t.d. fjölmiðlaefni, kvikmyndir, listaverk o.fl..

Áfangakeðjur í lista- og nýsköpunargreinum