TÖLF2TF05

Tölvunarfræði - forritun

Áfangalýsing:

Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.

 

Forkröfur: Að geta lesið námsefni á ensku

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sögu forritunar, hug- og vélbúnaðar.
  • helstu innviðum tölvu.
  • samspili vél- og hugbúnaðar.
  • muninum á heiltölubreytum, rauntölubreytum, textabreytum og rökbreytum.
  • skilyrðissetningum.
  • endurtekningum og lykkjum.
  • einfaldri forritun þar sem notaðar eru breytur, skilyrðissetningar og lykkjur.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma reikning talna milli mismunandi talnakerfa
  • greina, hanna og forrita einfaldari forrit á sem bestan máta
  • skipuleggja tög og uppbyggingu forrita með föllum
  • forrita með skilyrðum, lykkjum og föllum vinna með einfalda grafík og hljóð

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • reikna milli talnakerf
  • smíða forrit frá grunni skv. verklýsingu, bæði með og án grafíkur
  • skipta flóknu algrími upp í nokkra einfaldari hluta (föll)
  • byggja upp forritskóða á læsilegan og skipulegan hátt
  • skilja forrit og forritshluta, aðgerðir, tilgang þeirra og markmið