19 maí 2025
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Styrktarsjóði Gyðu Maríasdóttur. Styrktarsjóðurinn var stofnaður árið 1962 af nemendum Húsmæðraskólans Óska og er styrkurinn er ætlaður til stuðnings vestfirskum konum sem stunda sérhæft framhaldsnám á sviði lista eða menningar. Umsækjandi þarf að hafa náð átján ára aldri og hafa átt lögheimili á Vestfjörðum í a.m.k. tvö ár. Umsækjendur sem hafa sótt um áður mega sækja um aftur.
Umsóknir skulu berast til Heiðrúnar Tryggvadóttur skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, heidrun@misa.is
Umsóknarfrestur er til 11. júní n.k. Umsókn þarf að fylgja rökstuðningur.