Um skólann

Menntaskólinn á Ísafirði var stofnaður árið 1970, sem bóknámsskóli með hefðbundnu bekkjakerfi. Hann var þá starfræktur í húsi Gamla barnaskólans á Ísafirði við Aðalstræti. Skólinn tók á sig núverandi mynd um 1990 þegar Menntaskólinn, Iðnskóli Ísafjarðar (stofnaður 1905) og húsmæðraskólinn Ósk (stofnaður 1912) sameinuðust í einn skóla, sem þar með tók upp kennslu í ýmsum verknámsgreinum auk bóknáms til stúdentsprófs. Árið 1995 var gerður samningur við sveitarfélögin á Vestfjörðum um stofnun Framhaldsskóla Vestfjarða og var skólinn starfræktur undir því heiti til ársins 2000 þegar samþykkt var að færa nafn hans til fyrra horfs. Menntaskólinn á Ísafirði hefur því endurheimt sitt upprunalega heiti, þó að starfsemi hans hafi mikið breyst frá því hann var stofnaður.

Mennta­skólinn á Ísa­f­irði er sta­ðsettu­r í fögru­ u­mhv­erf­i í höf­u­ð­sta­ð Vest­­­fja­rða­. Skólinn er a­f­ heppi­legri stærð þann­ig a­ð nemendu­r hverf­a­ ekki í fjöld­a­nn. Skólabragur Menntaskólans á Ísafirði einkennist af persónulegu og heimilislegu and­rúmslofti, gagnkvæmri virðingu og valdeflingu. Húsa­kynni skólans eru­ björt og rúmgóð og öll á einni lóð, þar á meðal nýlegt og vel búið verknámshús fyrir málmiðngreinar og vél­stjórnar­braut. Einnig er góð aðstaða fyrir rafiðngreinar og fullbúin aðstaða er fyrir nám í húsasmíði og grunndeild hár- og snyrtigreina. Bóka­sa­f­nið er til f­yrir­mynda­r með góðri lestrar- og tölvuaðstöðu. Stórt og glæsilegt íþróttahús er fast við skólann. Falleg útivistarsvæði eru á næstu grösum og stutt er í skíðalandið.

Gildi Menntaskólans á Ísafirði eru virðing, metnaður og vellíðan. Í skólanum er boðið upp á f­jöl­breytt nám og kennsluhætti, þar fer fram öflugt starf sem byggir á því að efla nemendur og námsmenningu. Nú stunda á fimmta hundrað nemendur nám við skólann á bóknáms-, verknáms- og starfs­námsbrautum, bæði í stað- og fjarnámi. Skólinn sta­r­f­a­r ef­tir áf­a­nga­kerf­i og lagt er upp með fjölbreytt nám og metnaðarfulla kennsluhætti.

Í skólanum eru ýmsar rótgrónar hefðir, t.a.m. er boðið er upp á sólarkaffi og rjómapönnukökur á sal síðasta fimmtudag janúarmánaðar en sólin skín í fyrsta sinn á ný á glugga skólans 25. janúar, eftir meira en tveggja mánaða fjarveru handan fjalla. Í mars er haldin sérstök lista- og menn­ingar­vika í umsjá nem­enda skólans, nefnd Sólrisuhátíð og hefur verið fastur liður í menningar­lífi bæjarins árlega síðan 1975. Leikhópur skólans setur upp leikrit í fullri lengd sem frumsýnt er í Sólrisuvikunni.

Hins vegar tökum við breytingum fagnandi og leitumst við að skapa nýjar hefðir með hverjum nemendahópi fyrir sig. 

Við í MÍ erum allskonar og við fögnum fjölbreytileikanum!