Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021.
Farsæld barna felur í sér að börn og ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa þegar þau þurfa hann. Samkvæmt farsældarlögum (nr. 86/2021) á þjónusta við börn og fjölskyldur að vera samfelld, skipulögð og samræmd. Markmiðið er að tryggja rétta aðstoð á réttum tíma og koma í veg fyrir að börn falli á milli kerfa. Lögin ná til barna undir 18 ára aldri.
Til að óska eftir þjónustu þurfa forsjáraðilar/ungmennið að fylla út eyðublað með umsókn sem þarf að berast til tengiliðs innan skólans. Tilgangurinn er að auka samstarf þjónustuaðila í þágu farsældar ungmennis og tryggja að ungmenni og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi.
Tengiliður farsældar í MÍ:
Erna Sigrún Jónsdóttir, náms- og starfsráðgjafi erna@misa.is
Tengiliður hefur hagsmuni ungmennis að leiðarljósi í samstarfi og samráði við foreldra og ungmenni.
Hlutverk tengiliðar
Nánari upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barna, sjá á heimasíðunni farsaeldbarna.is og í þessu stutta kynningarmyndbandi:
Tenglar: