Á heimavist MÍ fer fram rafræn vöktun með öryggismyndavélum. Byggir hún á lögmætum hagsmunum og er metin nauðsynleg í öryggis- og eignavörsluskyni. Tilgangur vöktunarinnar er að varna því að eigum sé stolið, þær skemmdar eða farið sé um húsnæði skólans í leyfisleysi.
Öryggismyndavélarnar eru staðsettar við innganga að heimavist, á göngum vistarinnar og í mötuneyti.
Myndefni sem verður til við vöktun er vistað á sérstökum netþjóni sem skólameistari og tengiliður skólans hjá tölvuþjónustufyrirtæki skólans Snerpu ehf. hafa aðgang að. Myndefnið er eingöngu skoðað ef upp koma atvik sem varða eignavörslu eða öryggi, s.s. ef þjófnaður hefur átt sér stað, skemmdarverk eða slys.
Myndefnið er geymt í 30 daga og eyðist sjálfkrafa. Myndefni sem verður til við rafræna vöktun er ekki afhent öðrum (þ.e. þriðja aðila) og ekki unnið með það nema með samþykki þess sem upptakan er af eða með heimild Persónuverndar. Undantekning frá þessu er að heimilt er að afhenda lögreglu upptökur, varði þær upplýsingar um slys eða refsiverða háttsemi, eins og kveðið er á um í reglum nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Öryggismyndavélar - rafræn vöktun (verklagsregla)
Birt 13. ágúst 2025