Frá og með hausti 2026 verður leikskólaliðanám og stuðningsfulltrúanám í boði í fjarnámi við Menntaskólann á Ísafirði.
Leikskólaliðanám
veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja. Leikskólaliðar starfa við hlið annars fagfólks á leikskólum.
Stuðningsfulltrúanám
styrkir fagvitund og áhersla er lögð á uppeldisfræði, fötlunarfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Stuðningsfulltrúar starfa við hlið annars fagfólks að umönnun, uppeldi og menntun barna og ungmenna með sérþarfir.
Uppsetning námsins
Námið er alls 120 einingar og lýkur með framhaldsskólaprófi
Miðað við að ljúka náminu á 5 önnum þarf að ljúka 20-25 einingum á önn.
Starfsþjálfun/vinnustaðanám er á síðustu tveimur önnunum
Námið er kennt í fjarnámi, í boði er aðstaða í MÍ fyrir námshittinga.
Raunfærnimat
RAUNFÆRNIMAT í boði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða (www.frmst.is)
Raunfærnimat er leið til að meta þá færni, þekkingu og reynslu sem fólk hefur öðlast með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi á móti einingum á framhaldsskólastigi eða viðmiðum atvinnulífsins. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka námi sem þegar var hafið.
Hvað er miðað við til að einstaklingur geti farið í raunfærnimat:
Hvað geri ég ef ég vil fara í raunfærnimat í leikskólaliðnámi eða stuðningsfulltrúanámi?
Innritun
Hægt er að sækja um námið á www.innritun.is, umsóknarfrestur er til 26. maí 2026. Frekari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á fjarnam@misa.is
