Náttúruvísindabraut

 

Lýsing: Á brautinni er lögð áhersla á gott almennt nám og þó einkum góða þekkingu á sviði náttúru- og raunvísinda. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og nám á henni er góður undirbúningur fyrir frekara nám í náttúru- og raunvísindum, heilbrigðisvísindum og tæknigreinum á háskólastigi.

Námsframvinda: Lágmarkseiningafjöldi er 200 einingar. Meðalnámstími er 3-4 ár. Nemandi sem hyggst ljúka námi á þremur árum þarf að jafnaði að ljúka um 67 einingum á hverju skólaári.

Inntökuskilyrði á brautina: Að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast.

 

ALMENNUR KJARNI 104 ein
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Danska DANS 2BF05         5  
Enska ENSK 2DM05 2RR05 3HO05     10 5
Hugmyndir og nýsköpun HUGN 1HN05       5    
Inngangur að félagsvísindum FÉLV 1IF05       5    
Inngangur að náttúruvísindum NÁTV 1IN05       5    
Íslenska/íslenska sem annað mál ÍSLE eða ÍSAN 2BR05 2MG05 3SB05 3XX05*   10 10
Íþróttir ÍÞRÓ 1AL01 1LH01 1AL01 1AL01 4    
Jafnréttis- og kynjafræði JAFN 1JK05       5    
Lokaverkefni LOKA 3VE02           2
Náms- og starfsfræðsla NÁSS 1NN03       3    
Saga SAGA 2FR05 2MÍ05       10  
Stærðfræði STÆR 2GS05 2JA05 2LT05     15  
Umhverfis- og átthagafræði UMÁT 3UN05           5
Upplýsingatækni- og vefsíðugerð UPPT 1UV05       5    
Einingafjöldi 104         32 50 22
BRAUTARKJARNI 30 ein
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Efnafræði EFNA 2AE05         5  
Eðlisfræði EÐLI 2AF05         5  
Jarðfræði JARÐ 2EJ05         5  
Líffræði LÍFF 2LE05         5  
Stærðfræði STÆR 2VH05         5  
Forritun TÖLF

2TF05

        5  
Einingafjöldi 30           30  
ÞRIÐJA TUNGUMÁL 15 ein
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Franska FRAN 1AG05 1AF05 1AU05   15    
eða þýska ÞÝSK 1AG05 1AF05 1BG05   15    
Einingafjöldi 15         15    
BUNDIÐ ÁFANGAVAL 30 ein - val um 30 ein. A.m.k. 4 áfangar af 3. þrepi
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Efnafræði EFNA 3EJ05 3LÍ05          
Eðlisfræði EÐLI 3SB05 3RS05          
Næringarfræði NÆRI 2GR05            
Líffræði LÍFF 3EF05 3VE05          
Stærðfræði STÆR 3DF05 3SS05 3HE05        
Tölvunarfræði TÖLF 3HH05            
Einingafjöldi 30           0-10 20-30
FRJÁLST VAL 21 ein
 
Hámark ein á 1. þrepi 33% eða 66 ein.
Hámark ein á 2. þrepi 50% eða 100 ein.
Lágmark ein á 3. þrepi 22,5% eða 45 ein.

Skipulag
Námið á brautinni skiptist í almennan kjarna, brautarkjarna, þriðja tungumál, bundið áfangaval og frjálst val. Við valið þurfa nemendur að huga að þrepaskiptingu aðalnámskrár sé fullnægt. Nemendur þurfa að skipuleggja valið í samráði við náms- og starfsráðgjafa í samræmi við framtíðaráætlanir.

*valáfangi í íslensku á 3. þrepi

Skipulag námsbrautarinnar eftir önnum