Nemendahandbók

Í nemendahandbók eru teknar saman ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir nemendur og forráðamenn þeirra.

 

Innritun

Innritun nemenda í skólann fer fram í gegnum www.innritun.is (dagskólanemar) eða INNU (fjarnemar)

Gjaldskrá

Í gjaldskrá skólans er að finna upplýsingar um helstu gjöld fyrir nám og þjónustu sem skólinn veitir.

Skóladagatal

Skóladagatal Menntaskólans á Ísafirði veitir upplýsingar um skipulag skólaársins og dagsetningar helstu viðburða í skólastarfinu.

Skólareglur

Í skólareglum er að finna reglur um mætiungu, námsframvindu, hegðun og umgengni sem nemendum ber að fara eftir.

Reglur um námsmat

Reglur um námsmat segja til um hvernig kennarar haga námsmati og hvað gera skal ef upp kemur ágreiningur milli nemenda og kennara um námsmat. 

Námsmatsdagar

Nokkrum sinnum á önn eru námsmatsdagar. Þá eru ekki hefðbundar kennslustundir heldur sinna kennarar námsmati og endurgjöf til nemenda. Kennarar geta þá kallað nemendur inn eftir þörfum, t.d. í viðtal, sjúkrapróf eða önnur verkefnaskil. Hver kennari upplýsir sína nemendur um fyrirkomulag á námsmatsdegi og nemendur geta ekki gert ráð fyrir að vera í fríi á þessum dögum. Í skóladagatali eru líka örfáir námsmatsdagar án nemenda og þá geta nemendur verið vissir um að þurfa ekki að mæta í skólann. 

Moodle

Nemendur og kennarar nota námsumhverfið Moodle. Þar eru allar helstu upplýsingar um námsefni, námsáætlun, verkefnaskil, námsmat og fleira. Mikilvægt er að nemendur séu virkir á Moodle og fylgist vel með.  

INNA

INNA er námsumsjónarkerfi sem allir framhaldsskólar á Íslandi nota. Í INNU má finna stundatöflu, bókalista, einkunnir, lotumat, yfirlit yfir mætingu o.fl. Til að skrá sig inn á INNU þarf að nota rafræn skilríki eða Íslykil.

Tölvur og netkerfi

Tölvuumsjón í MÍ er í höndum tölvuþjónustu Snerpu sem sér um alla tölvuumsjón. Nemendur í tölvuvandræðum geta sent póst á firma@snerpa.is, hringt í síma 520 4015 eða sent inn beiðni hér. Allir nemendur skólans hafa aðgang að Office 365. Lykilorðið að Office 365 er það sama og að Moodle. 

Nýnemar

Við móttöku nýnema er farið eftir móttökuáætlun sem finna má í gæðahandbók skólans. Áður en skólastarf hefst er nýnemum boðið í kynningu í skólanum og þá er einnig farin nýnemaferð í upphafi haustannar þar sem þeim gefst tækifæri til að kynnast og eiga saman skemmtilegan dag.  

Móttökuáætlun nýnema og nýnema með sérþarfir 
Móttökuáætlun nemenda með annað móðurmál en íslensku
Móttökuáætlun nýnema á starfsbraut 

Umsjón nýnema

Nemendur og kennarar nota námsumhverfið Moodle. Þar eru allar helstu upplýsingar um námsefni, námsáætlun, verkefnaskil, námsmat og fleira. Mikilvægt er að nemendur séu virkir á Moodle og fylgist vel með.  

Félagslíf

Í skólanum er gróskumikið félagslíf og virkt nemendafélag. Stjórn nemendafélagsins hefur yfirumsjón með ýmsum viðburðum yfir skólaárið. Starf þeirra byggir ýmist á rótgrónum hefðum eins og 1.des hátíð, Sólrisuhátíð, Morfís, Gettu betur o.fl. sem og nýjungum sem nemendur eiga frumkvæði að hverju sinni. 

Náms- og starfsráðgjöf

Við skólann starfar námsráðgjafi sem hefur það hlutverk að standa vörð um velferð nemenda og veita þeim aðstoð. Nemendur, foreldrar/forráðamenn og kennarar geta ávallt leitað til námsráðgjafa og fengið ráðgjöf og aðstoð við ýmis mál. Nánari upplýsingar hér: Náms- og starfsráðgjöf

Bókasafn

Á  bókasafni skólans er góð aðstaða til náms og þar starfar bókavörður sem aðstoðar nemendur t.d. við heimildaleit. Á bókasafninu geta nemendur fengið lánaðar bækur, unnið verkefni og nýtt tölvur og prentara.

Skólahjúkrun

Hjúkrunarfræðingur er með fasta viðveru og geta nemendur pantað viðtal.   

Mötuneyti

Í  mötuneyti skólans geta nemendur og starfsfólk fengið staðgóðan hádegisverð alla virka daga. Boðið er upp á fjölbreyttan salatbar, súpu, grænmetisrétt og kjöt- eða fiskrétt. Matarmiða eða mataráskrift er hægt að kaupa í afgreiðslu hjá ritara skólans.  

Heimavist

Heimavist skólans er áföst bóknámshúsi. Þar eru 33 vel búin herbergi með sturtu og snyrtingu. Vistarbúum er skylt að vera í mötuneyti skólans og fara eftir gildandi heimavistarreglum

Foreldraráð

Foreldraráð skólans er skipað fjórum fulltrúum forsjáraðila nemenda og einum kennara. Markmið þess er m.a. að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og að efla samstarf forsjáraðila, starfsfólks og nemenda í samvinnu við skólann.  

Val fyrir næstu önn

Um miðja önn þurfa nemendur að velja sér áfanga fyrir næstu önn. Það gera þeir sjálfir í INNU og fer áfangavalið eftir því á hvaða braut þeir eru. Valið er alltaf auglýst vel og veita námsráðgjafi, áfanga- og fjarnámsstjóri, skólameistari og aðstoðarskólameistari nemendum aðstoð við valið.

Fjarnám

Allir bóknámsáfangar sem kenndir eru í MÍ eru einnig í boði í fjarnámi. Í fjarnámi er notað fjarkennslukerfið Moodle en þar setja kennarar inn námsáætlanir og verkefni. Nemendur geta skilað inn úrlausnum verkefna sinna þar sem og tekið gagnvirk próf. Fjarnámið fer því alfarið fram á netinu. 

Stöðupróf

Boðið er upp á stöðupróf í tungumálum....

Útskrift

Útskrift fer fram tvisvar á ári, að vori og fyrir jól...

Tímabókanir

Nemendur og forrráðamenn þeirra geta bókað tíma rafrænt hjá náms- og starfsráðgjafa, áfanga- og fjarnámsstjóra, aðstoðarskólameistara eða skólameistara.

Tilkynningar um einelti og ofbeldi (EKKO)

Hægt er að koma með ábendingu eða tilkynna um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi á rafrænni tilkynningasíðu. Tilkynningin berst til náms- og starfsráðgjafa sem hefur samband við þann sem tilkynnir við fyrsta tækifæri.

Gagnlegir tenglar

Gagnabanki náms- og starfsráðgjafa
Heimildaskráning og skýrslugerð - skoða þessa tengla
Næsta skref - um námsleiðir og störf
Menntasjóður námsmanna

Hljóðbókasafn Íslands
Leiðbeiningar fyrir Easy-reader
Háskólar á Íslandi 
Aðgangsviðmið háskóla