Bókasafn MÍ
Bókasafn Menntaskólans á Ísafirði er skólabókasafn og upplýsingamiðstöð fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk skólans. Veitir safnið aðgang að bókum auk annars safnkosts sem tengist kennslugreinum skólans auk þess að styðja við aðra starfsemi sem fram fer innan skólans. Í bókasafninu er hægt að fá aðstoð við upplýsingaleit, s.s. þegar nemendur þurfa að finna þær heimildir vegna verkefna.
Opnunartímar:
Mánudaga-fimmtudaga kl. 8-16
Föstudaga kl. 8-15
Starfsmaður bókasafns er Pernilla Rein pernilla@misa.is
Aðstaða, þjónusta og útlán
- Lesaðstaða er á svölum safnsins fyrir 22 manns auk aðstöðu á safnasvæði.
- Nemendur hafa aðgang að nettengdum tölvum auk prentara. Aðgangur er að vefbókum (kennslubókum) í einni tölvu í safni.
- Bókavörður aðstoðar nemendur og kennara við heimildaleit í gögnum safnsins auk þess sem hægt er að fá aðstoð við að leita í gagnasöfnum, svo sem leitir.is.
- Nýnemar fá kynningu á starfsemi og þjónustu safnsins auk kennslu í heimildarleit í upphafi fyrstu annar.
- Allir nemendur skólans og starfsfólk eru lánþegar skólasafns MÍ.
- Bækur eru almennt lánaðar út í tvær vikur. Hluti safnkostsins, svo sem orðabækur og handbækur, er til afnota í safninu og ekki lánaður út.
Heimildaleit og gagnlegar vefsíður
- Leitir.is veitir upplýsingar um bækur, hljóðbækur, rafbækur, tímarit og tímaritsgreinar, ljósmyndir og annað myndefni, hljóðrit, nótur, lokaverkefni háskólanema og margt fleira. Hluti gagnanna er í rafrænum aðgangi.
- Vísindavefurinn - íslenskur alfræðivefur
- Framhaldsskoli.is - námsvefur fyrir fólk á framhaldsskólastigi
- Britannica Online (Encylopedia Britannica) - alfræðivefur
- Google Scholar - aðgangur að vísindalegum greinum, bókum og fleira
- Snara.is - orðabókarvefur.
- Nemendum skólans býðst að nota orðabókavefinn snara.is sér að kostnaðarlausu á staðarneti skólans.
- Hvernig nota ég Snöru heima? Nemendur Menntaskólans geta keypt ársaðgang að Snöru heimavið á 990 kr.
Leiðbeiningar