Verk- og starfsnámsbrautir

Grunnnám hár- og snyrtigreina

Næsti dagskólahópur fer af stað í ágúst 2025.

Brautinni er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu undir nám í snyrti- og hársnyrtifræði. Heildarnám í hársnyrtiiðn er um 220 einingar og er námið í boði við Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri. Að lokinni starfsþjálfun þreyta nemendur sveinspróf sem veitir réttindi til að starfa í iðngreininni og síðar inngöngu í nám til iðnmeistara í hársnyrtiiðn.

Nánari upplýsingar

 Grunnnám vél- og málmtæknigreina

Grunnnám málm- og véltæknigreina veitir nemendum undirbúning til áframhaldandi náms í málm- og véltæknigreinum s.s. í stálsmíði, bifvélavirkjun og vélstjórn. Auk kjarnagreina taka nemendur faggreinar s.s. málmsuðu, málmsmíðar, rafmagnsfræði og vélstjórn.

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast.

Nánari upplýsingar

Grunnnám rafiðna

Næsti dagskólahópur fer af stað í ágúst 2025.

Markmið grunnnáms rafiðna er að undirbúa nemendur fyrir fagnám í rafiðngreinum. Grunnnám rafiðna er því fornám fyrir rafvirkjun, rafvélavirkjun, rafveituvirkjun og rafeindavirkjun. Námið er tekur að jafnaði fjórar annir og er skilgreint sem lokapróf á öðru þrepi. Að loknu námi á nemandinn að vera fær um að takast á við kröfur í framhaldsgreinum og hafa góða undirstöðuþekkingu á hugtökum og verklagi sem til þarf.

Nánari upplýsingar

Húsasmíði

Næsti dagskólahópur fer af stað haustið 2024.
Næsti dreifnámshópur fer af stað í janúar 2025.

Atvinnuheitið húsasmiður er lögverndað starfsheiti og húsasmíði er löggild iðngrein. Nám á húsasmiðabraut er 240 eininga iðnnám sem lýkur með burtfararprófi á 3. þrepi. Námið undirbýr nemendur undir starf húsasmiða. Í starfi þeirra felst meðal annars að byggja hús og húshluta, sinna viðhaldi bygginga, velja vinnuaðferðir, efni og verfæri og fara eftir kröfum um öryggismál. Í starfi sínu sýna þeir sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og eru meðvitaðir um vandað handverk. Að fengnu prófskírteini sem vottar útskrift af viðkomandi námsbraut og vottorði um að starfsþjálfun sé lokið getur nemandi sótt um að taka sveinspróf sem leiðir til útgáfu sveinsbréfs.​

Nánari upplýsingar

Lista- og nýsköpunarbraut

Hægt er að taka brautina samhliða opinni stúdentsbraut

Á lista- og nýsköpunarbraut er lögð áhersla á grunngreinar í lista- og nýsköpunargreinum, verklegum smiðjum og tölvuvinnslu sem og almennum kjarnagreinum. Nemendur sem stunda tónlistarnám á mið- eða framhaldsstigi geta fengið tónlistarnámið metið í frjálsu vali. Brautinni lykur með framhaldsskólaprófi á 2. þrepi en er einnig góður grunnur fyrir áframhaldandi nám á opinni stúdentsbraut og hentar vel fyrir þá sem stefna að starfi eða frekara námi í list- og nýsköpunargreinum.

Nánari upplýsingar

Sjúkraliðabraut

Menntaskólinn á Ísafirði, sem aðildarskóli að Fjarmenntaskólanum, býður upp á nám á sjúkraliðabraut. Námið er í umsjón Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólans á Ísafirði. Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis

Nánari upplýsingar

Sjúkraliðabrú

Menntaskólinn á Ísafirði, sem aðildarskóli að Fjarmenntaskólanum, býður upp á nám á sjúkraliðabraut. Námið er í umsjón Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólans á Ísafirði.

Lýsing: Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis.

Nánari upplýsingar

 Matartækninám

Næsti dreifnámshópur fer af stað í ágúst 2025, með fyrirvara um næga þátttöku.

Matartæknanám býr nemendur undir matreiðslu í eldhúsum heilbrigðisstofnana, leik-, grunn- og framhaldsskólum og mötuneytum vinnustaða. Matartæknar semja matseðla með fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis að leiðarljósi, breyta matseðlum fyrir einstaklinga sem þurfa á sérfæði að halda og skipuleggja innkaup. Þeir panta inn og taka á móti hráefni unnu og óunnu, undirbúa það til matargerðar og meðhöndla það til geymslu á viðeigandi hátt. Þeir matreiða máltíðir fyrir ólíka hópa, s.s. börn, unglinga, íþróttafólk og aldraða. Ennfremur þá sem þurfa á sérfæði og sjúkrafæði að halda og meta skammtastærðir hverju sinni. Þeir afgreiða fæði úr eldhúsi og stjórna skömmtunarfæribandi í stóreldhúsum. Þeir sjá um frágang samkvæmt heilbrigðisreglugerð. Matartæknar hafa einnig hæfni til að útbúa fínni kvöldverðarétti, leggja á borð, framreiða mat og annast þjónustu. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem matartæknir á Íslandi.

Nánari upplýsingar

 Skipstjórn A

Næsti dreifnámshópur fer af stað í ágúst 2025 með fyrirvara um þátttöku.

Markmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu, færni og hæfni sem krafist er til skipstjórnarréttinda á skipum styttri en 24 metrar. Réttindin fást að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma og starfsþjálfun.

Nánari upplýsingar

Skipstjórn B

Næsti dreifnámshópur fer af stað í ágúst 2026.

Markmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu, færni og hæfni sem krafist er til skipstjórnarréttinda á fiskiskipum styttri en 45 metrar í innanlandssiglingum og á flutninga- og farþegaskipum að 500 BT í strandsiglingum. Réttindin fást að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma, starfsþjálfun og öryggisfræðslu .

Nánari upplýsingar

Stálsmíði

Stálsmiður hannar, smíðar og gerir við vélar, reisir mannvirki og viðheldur þeim, smíðar, viðheldur og gerir við skip og sinnir annarri þjónustu sem byggir á málmsmíði. Stálsmiðir starfa hjá framleiðslu- og byggingafyrirtækjum. Stálsmiður er lögverndað starfsheiti og stálsmíði löggild iðngrein. Markmið náms í stálsmíði er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir inna af hendi. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í stálvirkjasmíði eða stálskipasmíði og til inngöngu í nám til iðnmeistararéttinda. Náminu er ætlað að búa nemendur sem best undir störf og frekara nám er áhersla lögð á að koma til móts við nemendur sem vilja hagnýta menntun sem felur í sér hæfni til starfa sem krefjast nákvæmni, útsjónarsemi, sköpunarhæfni og vandaðs verklags.

Nánari upplýsingar

Vélstjórn A

Næsti dagskólahópur fer af stað í ágúst 2025.
Dreifnámshópur fer af stað í janúar 2024, með fyrirvara um næga þátttöku.
Vélstjórnarnám skiptist í fjögur námsstig; A, B, C og D. A og B stig eru kennd í MÍ. Hvert stig fyrir sig veitir ákveðin réttindi samkvæmt reglugerð 535/2008. Nemendur sem ljúka B réttindum hafa samhliða öðlast rétt til töku sveinsprófs í vélvirkjun að loknu starfsnámi. Nemendur sem ljúka námi til C stigs hafa einnig lokið stúdentsprófi. Vélstjórnarnámið er skipulagt í samræmi við alþjóðlegar kröfur (IMO, STCW) og öðlast nemendur haldgóðan grunn til starfa jafnt til sjós og lands.

Nánari upplýsingar

Vélstjórn B/vélvirkjun

Næsti dagskólahópur fer af stað í ágúst 2024.

Vélstjórnarnám skiptist í fjögur námsstig; A, B, C og D. A og B stig eru kennd í MÍ. Hvert stig fyrir sig veitir ákveðin réttindi samkvæmt reglugerð 535/2008. Nemendur sem ljúka B réttindum hafa samhliða öðlast rétt til töku sveinsprófs í vélvirkjun að loknu starfsnámi. Nemendur sem ljúka námi til C stigs hafa einnig lokið stúdentsprófi. Vélstjórnarnámið er skipulagt í samræmi við alþjóðlegar kröfur (IMO, STCW) og öðlast nemendur haldgóðan grunn til starfa jafnt til sjós og lands.

Nánari upplýsingar

Iðnmeistaranám

Iðnmeistaranám er öflugt nám í stjórn­unar- og rekstr­ar­greinum sem miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla. Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein sem meistarabréf hans tekur til.

Iðnmeistaranám