Nefndir og ráð

Skólanefnd

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað skólanefnd við Menntaskólann á Ísafirði. Skipunin gildir til fjögurra ára frá 8. júlí 2022 að telja. Nefndina skipa:

Aðalmenn:

Gauti Geirsson
Karl Kristján Ásgeirsson
Kristján Óskar Ásvaldsson
Sædís Ólöf Þórsdóttir
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, formaður

Varamenn:

Andrea Gylfadóttir
Einar Óskar Sigurðsson
Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
Örn Elías Guðmundsson

Áheyrnarfulltrúar:

Sigríður Gísladóttir, fulltrúi kennara
Margrét Skúladóttir, varamaður
Unnur Guðfinna Daníelsdóttir formaður NMÍ, fulltrúi nemenda
María Lárusdóttir, fulltrúi foreldraráðs

Framkvæmdastjóri skólanefndar er Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari.

Ritari skólanefndar er Dóróthea Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólameistari.


Verksvið skólanefndar fer eftir lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 sem er eftirfarandi:

5. gr. Skólanefndir.

Ráðherra skipar skólanefnd við framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Í skólanefnd skulu sitja fimm einstaklingar. Tveir eru skipaðir samkvæmt tilnefningum sveitarstjórna og þrír án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Nefndin kýs sér formann til eins árs í senn. Áheyrnarfulltrúar eru þrír með málfrelsi og tillögurétt, einn tilnenfdur af kennarafundi, einn af nemendafélagi skólans og einn af foreldraráði, til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsis og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Hlutverk skólanefndar er að:
marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestri þjónustu við íbúa á starfssvæði skólans og tengslum hans við atvinnu-, félags- og menningarlíf,
vera skólameistara til samráðs um námsframboð skóla,
staðfesta skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar og fylgjast með framkvæmd hennar,
veita skólameistara umsögn um árlega starfs- og fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgjast með framkvæmd hennar,
vera skólameistara til samráðs um fjárhæð þeirra gjalda sem skólameistari ákveður skv. 45. gr.,
vera skólameistara til samráðs um samninga sem skólinn gerir,
vera skólameistara til samráðs um starfsmannamál,
veita ráðherra umsögn um umsækjendur um stöðu skólameistara.

(af vef Alþingis 31. janúar 2018, flettið upp á vef til að tryggja nýjustu útgáfu laganna)..

Skólaráð

Skólaráð Menntaskólans á Ísafirði 2024-2025 skipa:

Heiðrún Tryggvadóttir
Dóróthea Margrét Einarsdóttir
Martha Kristín Pálmadóttir
Frida Jörgensen, fulltrúi kennara
Nadja Widell,fulltrúi kennara til vara
Unnur Guðfinna Daníelsdóttir, formaður NMÍ
Jón Gunnar Kanishka Shiransson, gjaldkeri NMÍ

Skólaráð skal starfa við framhaldsskóla samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá árinu 2008. Um skólaráð segir í lögunum:

7. gr. Skólaráð.

Skólaráð skal vera skólameistara til samráðs og aðstoðar. Skólameistari er oddviti skólaráðs sem auk hans skal skipað staðgengli hans og fulltrúum kennara og nemenda. Heimilt er að setja í reglugerð nánari ákvæði um skipan skólaráðs, verksvið þess og starfshætti.

Reglugerð um skólaráð við framhaldsskóla, 140/1997 um skipan og hlutverk skólaráðs hefur verið felld úr gildi.

Jafnréttisnefnd

Frida Jörgensen
Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir, formaður
Svanhildur Garðarsdóttir

Umhverfisnefnd

Nadja Widell
Pernilla Rein, formaður
Sveinberg Þór Birgisson

Stjórn Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði (NMÍ) veturinn 2025 - 2026

Formaður: Anna Salína Hilmarsdóttir
Gjaldkeri: Ísak Helgi Björnsson
Ritari: Brynhildur Laila R. Súnadóttir
Menningarviti: Kristján Hrafn Kristjánsson
Málfinnur: Grétar Logi Sigurðsson
Formaður leikfélags: Anna María Ragnarsdóttir
Formaður vídeóráðs: Soffía Rún Pálsdóttir
Fulltrúi verknámsnema:Tristan Ernir Ársælsson

 

Foreldraráð

Aðalheiður Jóhannsdóttir, ritari
Erna Sigrún Jónsdóttir, varamaður
Heiðar Birnir Torleifsson, meðstjórnandi
María Lárusdóttir, áheyrnarfulltrúi í skólanefnd
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, fulltrúi kennara
Dagný Finnbjörnsdóttir
Edda María Hagalín
Heiðdís Ösp Agnarsdóttir
Ívar Már Svanbergsson

Foreldraráð Menntaskólans á Ísafirði var stofnað þann 6. desember 2001. Ein af helstu ástæðunum fyrir stofnun þess var hækkun sjálfræðisaldurs úr 16 árum í 18 ár. Félagar eru þeir foreldrar eða forráðamenn nemenda sem eru undir 18 ára aldri en foreldrum eldri nemenda er einnig frjálst að gerast félagar.

Samkvæmt 50. grein í lögum um framhaldsskóla frá 2008 nr. 92 segir:

"Við hvern framhaldsskóla skal starfa foreldraráð. Skólameistari boðar til stofnfundar þess. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og í samstarfi við skólann efla samstarf foreldra og forráðamanna ólögráða nemenda við skólann. Félagsmenn geta verið foreldrar nemenda við skólann.

Kjósa skal í stjórn ráðsins á aðalfundi þess. Foreldraráð tilnefnir einn áheyrnarfulltrúa í skólanefnd. Foreldraráð setur sér starfsreglur."

Markmið foreldraráðsins eru m.a.:

  • að efla samstarf foreldra /forráðamanna og starfsfólks/nemenda skólans
  • að styðja heimili og skóla í að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði
  • að koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál
  • að vera samstarfsvettvangur foreldra / forráðamanna innbyrðis standa vörð um réttindi nemenda til menntunar og aukins þroska
  • að veita skólanum lið, svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði samkvæmt kröfum hvers tíma

Foreldraráð er skipað 5 fulltrúm, 4 foreldrum/forráðamönnum og 1 kennara sem valinn er á kennarafundi. Formaður er kosinn sérstaklega en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Fundargerðir foreldraráðs

Foreldraráðsfundur 17.01.24

Foreldraráðsfundur 27.11.23

Gagnlegir tenglar fyrir foreldra:

Virkir foreldrar betri framhaldsskóli

Facebook síða foreldraráðs Menntaskólans á Ísafirði

Samtökin heimili og skóli