Almennt um fjarnám

Allir bóknámsáfangar sem kenndir eru í MÍ eru einnig í boði í fjarnámi. Í fjarnámi er notað fjarkennslukerfið Moodle en þar setja kennarar inn námsáætlanir og verkefni. Nemendur geta skilað inn úrlausnum verkefna sinna þar sem og tekið gagnvirk próf. Munnleg próf með kennara fara fram í gegnum Teams.  Fjarnámið fer að mestu leyti fram á netinu en í sumum áföngum eru skrifleg hlutapróf þar sem nemendur þurfa að finna sér próftökustað í samráði við kennara. 

 

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á fjarnam@misa.is

 

Skráning fyrir haustönn 2026 er frá 22. apríl til 16. ágúst 2026.

Moodle

Við kennslu í fjarnámi notum við í MÍ námsumhverfið Moodle. Allir fjarnemar sem hafa borgað greiðsluseðil fá sendan Moodle-aðganga í tölvupósti áður en önnin hefst. Ef þú hefur verið skráður í fjarnám hjá okkur áður notar þú sama aðgang. Ef aðgangurinn er glataður er hægt að hafa samband við ritara skólans á netfangið elin@misa.is.

Leiðbeiningar við innskráningu í Moodle

Leiðbeiningar við innskráningu í Moodle Mobile

Mikilvægt er að fara nokkrum sinnum í viku inn á Moodle til að fylgjast með því sem fram fer í áfanganum. Á Moodle er m.a. að finna námsáætlun áfanga og mikilvægt að nemendur kynni sér hana vel í upphafi annar. Í námsáætlun koma m.a. fram upplýsingar um:

  • efni áfangans
  • markmið
  • áætlun um yfirferð
  • námsmat
  • námsgögn

Microsoft Office 365

Nemendur í fjarnámi fá aðgang að Microsoft Office pakkanum hjá skólanum og geta notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann.

Leiðbeiningar við uppsetningu á Office 365

Inna

INNA er námsumsjónarkerfi sem allir framhaldsskólar á Íslandi nota. Í INNU getur þú séð hvaða áfanga þú ert skráð/ur í, einkunnir, lotumat o.fl. Til að skrá sig inn á INNU þarf að nota rafræn skilríki eða Íslykil.

Gjaldskrá

Fjarnemar fá sendan greiðsluseðil í heimabanka fyrir fjarnámsgjöldum. Ef nemandi er ekki orðinn 18 ára fer greiðsluseðill í heimabanka forráðamanns. Fjarnámsgjöld eru ekki endurgreidd.

Ráðgjöf við val á áföngum og mat á fyrra námi

Hægt er að fá ráðgjöf við val á áföngum og námsmat hjá áfanga- og fjarnámsstjóra og náms- og starfsráðgjafa. Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn sem varða nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra. Nemendur sem eru skráðir í fjarnám í MÍ fá fyrra nám sitt metið án aukakostnaðar. Nemendur sem ekki eru skráðir nemendur við skólann greiða 10.000 krónur fyrir námsmat.

Náms- og starfsráðgjöf
Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafi skólans er Erna Sigrún Jónsdóttir (erna@misa.is). Möguleiki er að fá viðtöl við hana eftir samkomulagi. Tímapöntun fer fram hér og geta þau farið fram á skrifstofu náms- og starfsráðgjafa, í síma eða á Teams.

Nemendur með námsörðugleika
Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita. Þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda, t.d. vegna lesblindu, þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.

Námsmat í fjarnámi

Í MÍ er lögð áhersla á leiðsagnarnám þar sem nemendur eru metnir jafnt og þétt alla önnina með það að markmiði að bæta námsárangur og kennslu. Nemendur þurfa því að vinna jafnt og þétt yfir önnina. Hverri önn er skipt niður í þrjár námslotur. Eftir fyrstu tvær loturnar er gefið lotumat og í lok þriðju lotu er gefið lokamat. Á skóladagatali má finna allar mikilvægar dagsetningar skólaársins.

Engin lokapróf eru í fjarnámi og enginn einn stakur námsmatsþáttur gildir meira en 40%. Námsmat í hverjum áfanga fyrir sig kemur skýrt fram í námsáætlun sem aðgengileg er á Moodle við upphaf annar.

Námsmat í fjarnámi er fjölbreytt og getur t.a.m. falið í sér vinnubækur, skýrsluskrif, próf, ritgerðir, hópverkefni, fyrirlestra og fleira. Í einhverjum tilvikum getur námsmat falist í skriflegu hlutaprófi sem fjarnemar þurfa að þreyta á prófstað. Í slíkum tilvikum gilda eftirfarandi viðmið:

  • Dagsetning prófs liggur fyrir í upphafi annar og kemur fram í námsáætlun og á moodle.
  • Nemandi ber ábyrgð á að finna sér prófstað og senda kennara sínum upplýsingar netfang tengiliðar tímanlega.
  • Kennari sendir prófið á tengilið á viðkomandi prófstað, tengiliður leggur prófið fyrir skv. fyrirmælum og sendir úrlausn nemanda til kennarans.
  • Nemandi ber kostnað af próftöku á viðkomandi prófstað

Almennar reglur um námsmat má finna í gæðahandbók skólans.

Vinnureglur í fjarnámi

Fyrir nemendur:

  • Námsáætlun er á Moodle. Hana skulu nemendur kynna sér vel í upphafi annar.
  • Fjarnám er sjálfsnám undir handleiðslu kennara og krefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda. Fjarnám felur í sér aukna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hefðbundinn 5 eininga áfangi samsvarar um 20% vinnu. Ekki er mælt með að fjarnemar taki fleiri en 2-3 áfanga á önn.
  • Mikilvægt er að lesa vel allar leiðbeiningar og fyrirmæli, virða tímasetningar og leysa þau verkefni sem fyrir eru lögð. Nemendur skulu skila verkefnum í síðasta lagi á þeim tíma sem tilgreindur er sem skilafrestur
  • Nemendur þurfa að fara reglulega (nokkrum sinnum í viku) inn á Moodle til að fylgjast með því sem fram fer í áfanganum.
  • Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita og þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.
  • Nemendur þurfa að láta kennara og áfanga- og fjarnámsstjóra vita vilji þeir hætta í áfanga.
  • Nemendur þurfa að hafa aðgang að nettengdri tölvu. Nemendur þurfa að hafa lágmarkskunnáttu í ritvinnslu og tölvunotkun og æfingu í að nota veraldarvefinn.
  • Nemendur þurfa að hafa tíma til að stunda fjarnámið.

Fyrir kennara:

  • Kennari setur fram skýra námsáætlun á Moodle þar sem fram koma markmið, tímaáætlun, verkefni og námsmat áfangans.
  • Notast er við námsvefinn Moodle þar sem verkefni eru lögð fyrir á rafrænu formi og einnig er hægt að skila á rafrænu formi nema kennari ákveði annað.
  • Kennari skal tilgreina frest verkefna og prófa í verkefnalýsingu á Moodle
  • Kennarar meta ekki verkefni sem berast eftir skilafrest.
  • Kennari hefur reglulega samband við nemendur og fylgist með námi þeirra. Langvarandi óvirkni nemanda ber að tilkynna áfanga- og fjarnámsstjóra.
  • Spurningum nemenda ber að svara innan tveggja virkra daga.
  • Kennari tilkynnir um próf eða verkefni á Moodle með að minnsta kosti 5 virkra daga fyrirvara fyrir tilgreindan skilafrest verkefnis.
  • Kennari skipuleggur próf og verkefnaskil á þann hátt að tekið sé mið af þörfum bæði dagskólanema og fjarnema í áfanga, t.d. þannig að próftökutími geti verið hvort sem er að virkum degi eða kvöld/helgi.
  • Kennari skilar endurgjöf um verkefni og próf eigi síðar en tveimur vikum eftir skilafrest.

 

Hvenær byrjar fjarnámið?

Skólastarf hefst á haustönn 2026 þann 18. ágúst. Hægt verður að nálgast bókalista í INNU frá 12. ágúst. Skráning í fjarnám hefst 20. apríl og lýkur 13. ágúst.