Grunnám hár- og snyrtigreina

Næsti dagskólahópur fer af stað í ágúst 2027.

Lýsing: Brautinni er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu undir nám í snyrti- og hársnyrtifræði. Heildarnám í hársnyrtiiðn er um 220 einingar og er námið í boði við Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri. Að lokinni starfsþjálfun þreyta nemendur sveinspróf sem veitir réttindi til að starfa í iðngreininni og síðar inngöngu í nám til iðnmeistara í hársnyrtiiðn.

Námsframvinda: Námið er 118 einingar. Meðalnámstími er 3-4 annir.

Inntökuskilyrði á brautina: Að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast.

Til að skólinn geti stofnað rafræna ferilbók og nemasamning þarf að fylla út þetta eyðublað.

Þegar skólinn hefur stofnað ferilbókina fá neminn og meistarinn sms og/eða tölvupóst þar sem þeir eru beðnir að undirrita samninginn rafrænt.

Nánari upplýsingar um rafræna ferilbók má finna á heimasíðu Menntamálastofnunar.

ALMENNUR GREINAR 32 EIN
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Enska ENSK 2DM05         5  
Inngangur að félagsvísindum eða náttúruvísindum FÉLV eða NÁTV 1IF05
1IN05
      5    
Íslenska/íslenska sem annað mál ÍSLE eða ÍSAN 2BR05         5  
Íþróttir ÍÞRÓ 1AL01 1LH01 2 fein*   4    
Náms- og starfsfræðsla NÁSS 1NN03       3    
Upplýsingatækni UPPT 1UV05       5    
Stærðfræði (velja annað hvort) STÆR 2GR05 2RU05       5  
Einingafjöldi 32         17 15 0
FAGGREINAR 94 EIN
Námsgrein Skammstöfun         1. ÞREP 2. ÞREP 3. ÞREP
Förðun FÖRÐ 1AA03 1AC02 1A02   7    
Hármótun HMÓT 1HG04 2HG04 2HH04 3HG06 4 8 6
Hársnyrting HSNY 1HG04 2HG04 2HG06 3HG06 4 10 6
Iðnfræði háriðna IÐNF 1HG05 2HF05 2HG05 2HH05 5 15  
Iðnteikning háriðna ITEI 1HG05 2HG05     5 5  
Skeggsnyrting og rakstur HRAK 2HG02         2  
Starfskynning á vinnustað HSTA 1HG02 2HG02     2 2  
Verklegt permanent HPEM 1HG04 2HG02 3HG04   4 2 4
Verkstæði starfsgreina VSTÆ 2HG03         3  
Einingafjöldi 94         31 47 16

*ÍÞRÓ1AL01/ÍÞRÓ1HH01/ÍÞRÓ1SÉ01

Skipulag námsbrautarinnar eftir önnum