Íþróttasvið MÍ er í samvinnu við Bolungarvíkurkaupstað, Ísafjarðarbæ, Súðavíkurhrepp og íþróttafélögin Hörð, Vestra, SFÍ, Skotveiðifélag Ísafjarðar, UMFB og einnig HSV.
Á íþróttasviði er boðið upp á sérsniðið nám sem hentar vel fyrir nemendur sem æfa mikið og vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða námi.
Nemendur á íþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsvísinda-, náttúruvísinda- og opinni stúdentsbraut). Einnig er hægt að stunda nám á sviðinu samhliða öðru námi við skólann í samráði við áfangastjóra. Nemandi sem útskrifast af sviðinu útskrifast með stúdentspróf/iðn- og starfsnámspróf auk útskriftar af íþróttasviði.
Uppsetning íþróttasviðs:
Íþróttasviðið er þannig upp sett að nemendur taka alls 30 einingar á sviðinu og er miðað við einn áfanga, 5 einingar, á önn. Hver áfangi skiptist þrennt:
1. Bókleg fræðsla 1 klst á viku
S.s. næring, íþróttasálfræði, markmiðssetning, afrekshugsun og þjálffræði
2. Æfingar í íþróttagrein 2 klst á viku
Æft er undir leiðsögn þjálfara í hverri íþróttagrein á skólatíma, þar sem því er við komið
3. Teygjur
Æft er í íþróttahúsinu á Torfnesi undir leiðsögn íþróttakennara
Ákveðnar kröfur eru gerðar til nemenda á íþróttasviði:
Efnisgjald á brautinni er 20.000 kr. á önn. Inni í því er æfingafatnaður, íþróttabúnaður o.fl. Gjaldið er innheimt með greiðsluseðli í heimabanka við upphaf hverrar annar.