Algengar spurningar og svör um fjarnám í MÍ

Get ég klárað stúdentspróf í fjarnámi?

Já, allir almennir bóklegir áfangar eru í boði í fjarnámið við MÍ

Ekki eru allir áfangar í boði allar annir og því hvetjum við nemendur atil að nýta sér aðstoð áfanga- og fjarnámsstjóra og námsráðgjafa við skipulag námsframvindu

 Hvað get ég tekið margar einingar á önn?

Við mælum ekki með fleiri einingum en 25 á önn í fjarnámi (5 áföngum)

 Ég er í öðrum skóla, fæ ég áfanga frá ykkur metna í mínum skóla?

Fjarnám nemenda er alfarið á þeirra ábyrgð. Sértu í námi í öðrum skóla en langar að taka áfanga hjá okkur, mælum við með að fá aðstoð hjá þínum áfangastjóra til að vera viss um að skólinn þinn meti áfanga frá okkur í stað áfanga í þínum skóla

 Hvað kostar að vera í fjarnámi?

Fyrir einn áfanga er gjaldið 6.000 (skráningagjald) og 13.000 (áfangagjald) = 19.000

Fyrir tvo áfanga er gjaldið 6.000 (skráningagjald) og 2x13.000 (áfangagjald) = 32.000

Fyrir þrjá áfanga og fleiri er gjaldið 6.000 (skráningagjald) og 3x13.000 (áfangagjald) = 45.000

 Get ég skipt um skóla og komið til ykkar? Fæ ég þá gömlu áfangana mína metna?

Við metum alla áfanga sem passa við áfanga á brautum hjá okkur

Svo hægt sé að meta þig inn í skólann til okkar þarftu að senda inn kennitölu, símanúmer og námsferilinn þinn

Mat á námi kostar 10.000 kr sem dragast svo frá innritunargjöldum hefji nemandi nám við skólann

 Hvar finn ég námsferilinn minn?

Námsferil er hægt að nálgast á:

www.inna.is er nemendur hafa aðgang að þeim vef

www.island.is

Hjá þeim skóla sem nemandi hefur stundað nám, hafi nemandi ekki aðgang að ofangreindu

 Hver er munurinn á INNA og MOODLE?

Inna er hálfgert bókhaldskerfi, þar sjá nemendur í hvaða áfanga þeir eru skráðir og viðveru (dagskólanemendur)

Moodle er námsumsjónarkerfi skólans. Þar setja kennarar inn námsáætlun, verkefni og annað námsefni. Nemendur skila verkefnum og prófum í gegnum Moodle.

 Fæ ég sér tölvupóstfang fyrir MÍ?

Nei, nemendur notast við eigið tölvupóstfang í skólanum

 Ég er skráð/ur í fjarnám, af hverju kemur eins og ég sé dagskólanemi?

Allir nemendur við skólann skrást sem dagskólanemendur þó þeir séu í fjarnámi

Ástæðan er sú að dagskólanemendur og fjarnemendur eru í sömu hópum í áföngum

 Áfangaheitin í mínum skóla eru ekki þau sömu og hjá ykkur, hvernig veit ég hvaða áfanga ég þarf að taka?

Best er að fá aðstoð hjá áfangastjóra þíns skóla við að finna réttu áfangana. MÍ getur ekki borið ábyrgð á því hvaða áfanga aðrir skólar meta

 Er fjarnámið léttara en dagskólanám?

Nei alls ekki. Fjarnám er sjálfsnám og krefst mikils skipulags. Fjarnemar sinna sama námi og dagskólanemar en á eigin tíma. Fjarnemar þurfa að fylgja sömu námsáætlun og dagskólanemendur og passa vel upp á skiladaga verkefna og prófa.

 Hvar sæki ég um fjarnámið?

Sótt er um í gegnum umsóknarvef: Umsóknarvefur