ÁÆST3SD02 - Áætlun- og gæðastjórnun 4

Áfangalýsing:

Í áfanganum læra nemendur að nýta sér tölvur við útreikninga, verkáætlanir og notkun eyðublaða við gæðastjórnun. Kennd eru grunnatriði töflureiknis og verkáætlanaforrits til að hafa yfirsýn yfir kostnaðarþætti verkefna, verkefnastýringu, gerð tímaáætlana, endurskoðun áætlana. Kennd er notkun helstu eyðublaða og farið í stjórnunar og verkferla gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir. Farið er í gagnainnslátt í töflureiknum, breytingar á skjölum, forsnið, röðun gagna, útlitshönnun og kenndar ýmsar grunnaðgerðir eins og summa og meðaltöl, formúlugerð, beinar og afstæðar tilvísanir og tenging milli skjala. Fjallað er um áætlanagerð eins og sundurliðun verkefna og Ganttrit í nýjustu forritum. Áfanginn er sniðinn að þörfum bygginga og mannvirkjagreina og fer kennslan að mestu fram með raunhæfum verkefnum þar sem m.a. er unnið með verðskrár einstakra iðngreina.

Forkröfur: ÁÆST3SC01

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • verkefnastýringu/gæðastjórnun byggingaferli i verðskrám iðngreina og kostnaðaráætlunum
  • gerð kostnaðaráætlana og notkun töflureiknis við útreikninga uppbyggingu og gerð kostnaðaráætlana
  • uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
  • áætlanagerð og verkáætlanaforritum
  • tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
  • helstu stjórnunar‐ og verkferlum
  • gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir skipuritum og starfslýsingum
  • meðhöndlun og vistun nýrra teikninga og verklýsinga
  • móttöku efna á vinnusvæði
  • dagbókarhaldi og úttektum
  • meðhöndlun frábrigða/galla
  • innra eftirliti með einstökum verkþáttum verkefnis‐ og verkþáttarýn

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
  • beita tíma‐ og hráefnisskráningu
  • vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
  • beita og fylgja eftir innra eftirliti með einstökum verkþáttum
  • fara að lögum og reglugerðum um skipulags‐ og byggingarmál

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
  • beita tíma‐ og hráefnisskráningu
  • vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
  • beita og fylgja eftir innra eftirliti með einstökum verkþáttum fara að lögum og reglugerðum um skipulags‐ og byggingarmál