HÚSA3HU09, HÚSA3ÞÚ09 - Timburhús 1 og 2

Áfangalýsing:

Í áfanganum er kennd smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðar- og milliveggi. Farið er í klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga, hurða, stiga og innréttinga auk almenns frágangs. Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval og staðsetning á stoðum og hvernig á að koma fyrir einangrun og rakavörn. Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp

Námsmat byggir á skriflegum verkefnum 30 % og verklegum verkefnum 70%. Námsmat fyrir verklega hlutann er gefið í lok hverjar viku og er byggt á kennaramati 42% og sjálfsmati 28%

Forkröfur: GLÚT2HH08, INNK3HH05 og INNR2HH08

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu berandi timburveggja
  • uppbyggingu þakvirkis úr timbri
  • yfirborðsmeðferð smíðaviðar og uppbyggingu eldvarnarhólfa
  • stífingu timburhúsa, veggjagrindum, stoðum, sperrum ásamt festingum og vexlun kringum þakop
  • frágangi á sperrum við sperrufót og mæni
  • mismunandi undirstöðum fyrir timburhús og þakkanta ásamt loftun
  • festingum gólfvirkis við sökkul- eða súluundirstöður
  • algengustu efnum og festingum í þakklæðningar ásamt skörun og neglinguborðaklæðninga
  • algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
  • frágangi á veggjaklæðningum í kringum veggop og á hornum, brúnum, vindvörn og loftun
  • uppsetningu lagnagrindar, afréttingu og frágang hennar
  • gólfklæðningum á gólfbita með tréborðum og gólfplötum
  • hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
  • eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
  • áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppbyggingu timburhúsa frá upphafi til enda
  • smíði steypumóta fyrir stiga
  • muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
  • smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • smíða þak-og gólfvirki ásamt hæðarskilum með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • greina algengar útfærslur á undirstöðum og þakvirkis, bæði fríberandi sperra og kraftsperra
  • greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
  • ganga frá hurðum og gluggum í timburhús ásamt þakgluggum og kvistum
  • velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu
  • klæða og velja heppileg verkfæri með mismunandi innanhússklæðningum á gólf, veggi og loft

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum ásamt því að taka tréundirstöður í rétta hæð fyrir dregara og stífa af
  • smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir ásamt léttum innveggum og berandi útveggum
  • klæða útveggi með liggjandi og standandi (timbur)útveggjaklæðningu
  • smíða gólf,veggi og þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
  • smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • einangra og klæða loft innanhúss og koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi í þak veggi
  • klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • einangra og klæða gólf og veggi innanhúss
  • koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
  • setja upp útihurðir og glugga, glerja og ganga frá bæði að utan og innan
  • stilla af karma og festa með tilheyrandi þéttingum
  • glerja og ganga frá með tilheyrandi listum, áfellum og gereftum
  • setja upp innréttingar og tréstiga og ganga frá listum í kverkar m.m.
  • koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót