Í áfanganum læra nemendur um smíði innréttinga og innihurða. Teknar eru fyrir samsetningar á plötuefni, smíðisfestingar, smíðistengi og uppsetning á innréttingum. Gerð er grein fyrir iðnaðarframleiðslu á innréttingum og innihurðum og mikilvægi þess að staðla vinnuferli og gerð, stærð og lögun framleiðsluvöru. Kennslan er aðallega verkleg og byggist á spónlagningu og plötusmíði þar sem nemendur fá þjálfun í að smíða skápa og innihurðir. Áfanginn er sameiginlegur með húsasmiðum og húsgagnasmiðum. Efnisatriði/kjarnahugtök: Naglfastar innréttingar, eldhúsinnréttingar, fataskápar, viðarspónn, spónlagning, spónskurður, spónlíming, spónaplötur, krossviður, trétrefja eða MDF-plötur, harðplast, gler, skrúfur, hefti, smíðistengi, lamir, dílun, límfelling, fals og nót, skúffa, ganglisti, hillur, borðplata, ljósakappi, frágangslisti, nót og fjöður, töppun, flögusamsetning, hornasamsetning, geirpungssamsetning, rammasamsetning, yfirfelldar lamir, innfelldar lamir, utanáliggjandi lamir, plötusög, kantlímingarvél, spónsax, spónlímingarvél, spónlagningarpressa, slípivélar, lökkunarbúnaður, skapalón, vinnsluhraði, sökkull, skápabrautir, Eldhúsinnréttingar.
Nemendur vinna í tveggja nemenda hópum að 4-5 verklegum verkefnum. Sérstök áhersla er lögð á uppsetningu innihurða og innréttinga.
Forkröfur: TRÉS1VT08, TRÉS1VÁ05, TRÉS1HV08
Markmið:
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: