ÍÞRÓ1HH01 - Íþróttir - hreyfing og heilsurækt

Áfangalýsing:

Nemandi stundar líkamsrækt sér til heilsueflingar. Fylgi þar ákveðinni áætlun og hafi einhver markmið að stefna að. Líkamsræktin getur farið fram utan skóla á líkamsræktarstöð eða í formi almenningsíþrótta. Stunda þarf hreyfingu einu sinni til tvisvar í viku yfir önnina að meðaltali, aldrei minna en 20-24 skipti yfir önnina. Oftar er betra. 

Forkröfur: Að hafa lokið 2 einingum í íþróttum.

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi tegundum líkamsræktar og uppsetningu á áætlunum
  • eigin frammistöðu

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda hreyfingu sem honum finnst skemmtileg  
  • meta eigin frammistöðu
  • meta hvort sú áætlun sem hann er að fylgja skili þeim árangri sem hann væntir 

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stunda hreyfingu til líkamsræktar sem hann hefur sjálfur skipulagt  
  • hugsa um eigið heilbrigði með hollum lífsháttum til framtíðar