RAFL3RK06 - Raflagnatækni

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á minni húsveitur frá heimtaug til notanda. Miðað er við allt að 100A heimtaug. Helstu þættir raflagna teknir fyrir. Helstu öryggismál reifuð og vísað í staðla og reglugerðir. Varnarráðstafanir eru skoðaðar. Verklegar æfingar fara fram í uppsetningu aðaltöflu, raflögnumrafhreyflum, mælingum og prófunum. Einnig æfingar í mismunandi lágspennudreifikerfum fyrir nafnspennur 230V, 400V og 460V. Nemendur geti gert efnis- og kostnaðaráætlun. Unnið í samvinnu við RER og RLT áfanga.

Forkröfur: RAFL3GA05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Virkni varnarráðstafana.
  • Mismundandi lágspennudreifikerfum.
  • Reglugerðum sem lúta að uppsetningu og öryggi.
  • Uppbyggingu aðal- og greinatafla.
  • Hvernig öryggismælingar eru framkvæmdar og virkni helstu mælitækja.
  • Þrífasa raflagnaefni.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Að setja upp aðaltöflu fyrir allt að 100A húsveitu.
  • Framkvæma öryggismælingar á húsveitu.
  • Vinna með staðla og reglugerðir.
  • Vinna með raflagnir og tengingu í töflu sem og frágang mismunandi kerfa.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja upp og tengja aðaltöflu í húsi eða fyrirtæki fyrir allt að 100A heimtaug.
  • Setja upp raflagnir í byggingar.
  • Framkvæma öryggismælingar á aðaltöflu og rafkerfi.