STÆR2GS05 - Stærðfræði - grunnáfangi

Áfangalýsing

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu. Markmiðið er að nemendur fái æfingu í meðferð talna og lausnum á verkefnum. Meginviðfangsefni áfangans er reiknireglur, rúmfræðireikningar, algebra, hlutföll, prósentur og fjármálalæsi.

Forkröfur: STÆR1GS05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla.

Markmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • deilanleika út frá frumþáttun og tilvist rauntalna
  • veldareglum
  • algengum reiknireglum
  • fyrsta stigs jöfnum
  • mikilvægi nákvæmni í mælingum
  • hlutföllum lengda, flatarmála og rúmmála
  • einföldum talningarreglum
  • flokkun gagna
  • laun og ráðstöfun tekna
  • lífeyrissjóður, skattur, framtal og vextir
  • hlutföllum og prósentureikningi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stærðfræðilega framsetningu við-komandi námsefnis og túlkun tákn-málsins á mæltu máli.
  • frumþáttun og deilanleika, tugveldarithátt, rauntölur, allar algengar reiknireglur og beitingu veldareglna
  • beitingutalningarreglna
  • flokkun gagna og einkennishugtök úr lýsandi tölfræði
  • reikna prósentur og finna hlutföll
  • hvaða reikningar búa að baki launaseðla


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :

  • sett sig inn í og túlkað útskýringar og röksemdir annarra af virðingu og umburðarlyndi án fordóma
  • skráð lausnir sínar skipulega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli og myndrænt
  • áttað sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • greint og hagnýtt upplýsingar á öðru stærðfræðiþrepi, í töluðu eða rituðu máli, myndrænt eða í töflum
  • skilið merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og unnið með þau
  • vitað hvers konar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, hvaða svara megi vænta og spurt slíkra spurninga
  • gert greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
  • hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu til ákvarðanatöku í sértækum verkefnum í starfi, á sviði fjármála, tækni eða lista
  • lesa launaseðil
  • prósentur og hlutföll í daglegu starfi og leik

 

Áfangakeðja í stærðfræði