STÆS1PR03 - Stærðfræði með áherslu á prósentureikning

Áfangalýsing:

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á prósentureikning með fjölbreyttri nálgun. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í prósentureikningi
  • tölum og reikniaðgerðum
  • forgangsröðun aðgerða

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita prósentureikningi í einföldum dæmum
  • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
  • leysa úr stærðfræðilegum prósentuupplýsingum
  • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja fram tölulegar upplýsingar
  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • reikna afslátt á vörum og/eða þjónustu
  • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
  • lesa í umhverfi sitt, t.d. í auglýsingabæklinga þar sem vörur eru auglýstar með afslætti
  • reikna út afslætti og tilboð