TEIK2HS05 - Teikningar og verklýsingar í húsasmíði

Áfangalýsing:

Í áfanganum læra nemendur grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta og fá þjálfun í að teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga. Teikningar eru að mestu unnar í tölvu ( AutoCAD ). Gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð, stöðlum, verklýsingum og lögð áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og tréefnum. Mikilvægt er að nemendur þjálfist í gerð rissteikninga við útfærslur deililausna og geri einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli verkupplýsinga. Áfanginn er bæði ætlaður húsa- og húsgagnasmiðum og byggist aðallega á verkefnavinnu og útskýringum og umfjöllun kennara eftir því sem þörf er á.

Forkröfur: GRTE1FF05, GRTE1FÚ05

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og helstu útfærslum þeirra
  • ákvæðum reglugerða um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
  • íslenskum stöðlum um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
  • stöðluðum málum á gluggum, hurðum, innréttingum og tréstigum
  • fagheitum í glugga-, hurða -, innréttinga- og stigateikningum
  • lestri byggingauppdrátta
  • notkun byggingarreglugerðar
  • notkun vinnuteikninga og verklýsinga
  • blaðstærðum, mælikvörðum og teiknitáknum.
  • teikniaðferðum og teiknireglum fyrir verkstæðisunna byggingarhluta í tölvu ( AutoCAD )

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna eftir reglugerðum
  • magntaka eftir teikningum og verklýsingum
  • teikna vinnuteikningar í tölvu ( AutoCAD )

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • styðjast viðRb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
  • lesa og vinna með teikningar af verkstæðisunnum byggingarhlutum
  • lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar
  • gera einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga
  • rissaog teikna einfalda glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
  • gera rissmyndir og eftir atvikum nota fjarvídd til að sýna rýmisútfærslur
  • gera séruppdrætti og sýna deililausnir með tilheyrandi vikmálum
  • vinna og hugsa sjálfstætt