VINN3GH08 - Verknám sjúkraliða - á sérdeildum

Áfangalýsing:

Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á sérdeildum s.s. gjörgæsludeildum, kvennadeild, endurhæfingardeildum, líknardeildum, geðdeildum eða heilsugælustöðvum og í heimahjúkrun. Verklegur hluti áfangans eru 12 átta klukkustunda vaktir á önn. Nemendur vinna jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandi skal skipuleggja hjúkrunarstörf sín í samvinnu við leiðbeinanda og geta yfirfært bóklega þekkingu á hjúkrunarviðfangsefni sem hann vinnur við á deildinni. Nemandinn skal fá þjálfun í því að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og geta forgangsraðað verkefnum sínum með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í upphafi tímabils setur nemandi sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandi fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.

Forkröfur: VINN3ÖH08, VINN2LS08

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi heildrænnar hjúkrunar
  • helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði skjólstæðinga
  • helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
  • mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
  • mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru á ofangreindum deildum
  • sjálfsákvörðunarrétti og réttindum sjúklinga samkvæmt lögum við ákveðnar aðstæður

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • sýna skjólstæðingum og aðstandendum virðingu og faglega umhyggju
  • nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á ofangreindum deildum á viðeigandi hátt
  • taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
  • sýna frumkvæði í verknámi þegar það á við
  • skrá og vinna samkvæmt hjúkrunarferli

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og geta rökstutt hana
  • virða trúnað við skjólstæðinga og aðstandendur
  • sýna hæfni í samskiptum og samstarfi við skjólstæðinga, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
  • leggja sitt af mörkum í þverfaglegri samvinnu
  • hjúkra sjúklingum við margbreytilegar aðstæður