LÍFS1HÞ02 - Lífsleikni á starfsbraut - Umhirða heimilis og líkama

Lýsing

Áfangalýsing:

Áhersla verður lögð á persónulegt hreinlæti og umhirðu og undirstöðuatriði í heimilisstörfum. Viðfangsefnið verður nálgast á fjölbreyttan hátt með fræðslu, umræðum og verklegum æfingum.

Forkröfur: Engar

Markmið:

Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mikilvægi persónlegs hreinlætis
  • Mikilvægi hreinlætis á heimilum
  • Mikilvægi þess að allir taki þátt í heimilisstörfum
  • Meðferð hreinlætisvara við þrif
  • Helstu áhöldum, verkfærum og heimilistækjum við þrif

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Sinna persónulegu hreinlæti
  • Sinna almennum heimilisþrifum
  • Nota hreinlætisvörur og almenn áhöld og tæki til þrifa, s.s. ryksugu, þvottavél, skúringamoppu og tuskur

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Greina hvenær og hversu oft þörf er á að sinna persónulegu hreinlæti
  • Greina hvernær viðeigandi er að sinna heimilisþrifum
  • Gera áætlun um heimilisþrif
  • Þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur
  • Nýta sér viðeigandi heimilistæki
  • Þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur