Valtímabil - Haust 2026

Í dag 17. mars hefst valtímabil fyrir haustönn 2026 og stendur það yfir til 23. mars.

Nemendur sem ætla að vera áfram í námi í MÍ þurfa að velja sér áfanga. Þetta á við um dagskólanemendur. Opnað verður fyrir umsóknir í almennt fjarnám 22. apríl og verður auglýst nánar síðar.
Hægt er að fá aðstoð hjá aðstoðarskólameistara, áfanga- og fjarnámsstjóra, náms- og starfsráðgjafa og skólameistara við valið. Hægt er að panta tíma hjá þeim á skrifstofu skólans eða með því að bóka tíma hér.

Nemendur sem stefna á útskrift á haustönn þurfa að panta tíma hjá áfanga- og fjarnámsstjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið.