Sagnfræðingurinn og fyrrverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, kom í heimsókn í Menntaskólinn á Ísafirði í dag.
Guðni kíkti meðal annars í sögutíma þar sem hann spjallaði við nemendur um sagnfræði og ýmislegt tengt íslenskri sögu. Einnig heimsótti hann tíma í stjórnmálafræði þar sem rætt var um forsetaembættið á Íslandi og tengingu þess við stjórnmál og samfélag.
Nemendur fengu þar tækifæri til að spyrja Guðna spurninga og ræða við hann um reynslu hans úr embætti forseta, sem gaf umræðunum bæði dýpri og persónulegri sýn.
Guðni sagðist mjög ánægður með heimsóknina og kvaddi með bros á vör, en hann lét jafnframt hafa eftir sér að hann kæmi gjarnan aftur að ári. Það var ánægjulegt að fá Guðna í heimsókn og fróðlegt fyrir nemendur að heyra beint frá fyrrverandi forseta Íslands. Við þökkum Guðna kærlega fyrir heimsóknina.