Menntaskólinn á
Ísafirði er heilsueflandi framhaldsskóli
Í vetur er áherslan lögð á næringu og þar skipar mötuneyti skólans að
sjálfsögðu stóran sess. Fjölbreyttur matseðill er í mötuneytinu alla
virka daga en hann er hægt að skoða hér á síðunni. Ýmsar nýjungar hafa
litið dagsins ljós:
- Við bjóðum upp á ókeypis hafragraut í mötuneyti
skólans kl. 7:50-9:10
- Hægt er að kaupa boost í mötuneytinu sem þarf að panta og
greiða daginn áður eða í síðasta lagi kl. 8 samdægurs. Fólk skilur eftir merkt
plastmál þegar pöntun er gerð. Boostið er afhent í mötuneyti kl. 10 á
morgnana. Hægt er að kaupa 10 skammta 2500 kr. Einnig er hægt að kaupa
stakan skammt á 300 kr
- Sallatbar í hádeginu alla virka daga
- Vatnsbrunnur á neðri hæð fyrir nemendur
Velkomin í mötuneyti MÍ!