Kynning á námi í MÍ á Patreksfirði

Nú í haust hefst rekstur MÍ á framhaldsdeild í Vesturbyggð. Af því tilefni verður starfsfólk MÍ sem og umsjónarmaður framhaldsdeildarinnar með kynningu á deildinni og námi í MÍ fimmtudaginn 6. ágúst frá kl. 17-18 í húsnæði deildarinnar í Skor á Patreksfirði. 

Námið í deidlinni verður skipulagt sem blanda af staðnámi og fjarnámi. Nemendur fá aðstöðu og stuðning á Patreksfirði samhliða kennslu og þjónustu frá Menntaskólanum á Ísafirði. Markmiðið er að efla möguleika ungmenna á sunnanverðum Vestfjörðum til að stunda framhaldsskólanám í heimabyggð með því að skapa öflugt námsumhverfi með góðu utanumhaldi og sterkri tengingu við skólasamfélag MÍ.

Áhugasamir geta sótt um nám til 16. ágúst. Þeir sem vilja kynna sér deildina og námið í MÍ eru hvattir til að líta við í Skor milli kl. 17 og 18 þann 6. ágúst.