Í Sólrisuvikunni setur Leikfélag MÍ á svið Litlu hryllingsbúðina eftir Alan Menken og Howard Ashman. Laust mál er í þýðingu Einars Kárasonar og söngtextar í þýðingu Megasar. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.
Frumsýning verður föstudaginn 26. febrúar kl. 20:00 í Edinborgarhúsinu og alls verða sýningarnar fimm. Hægt er að panta miða í síma 779-2644 eftir kl. 12:00 á daginn.
Sýningar verða sem hér segir:
Frumsýning 26. febrúar klukkan 20:002. sýning 28. febrúar klukkan 20:003. sýning, 29. febrúar klukkan 20:004. sýning 1. mars klukkan 20:005. sýning 3. mars klukkan 20:00Verð:12 ára og eldri : 3000 kr
6-11 ára : 2500
NMÍ: 2500
Öryrkjar og eldriborgarar: 2500