Tveir nýjir bilanagreinar afhentir MÍ

Í vikunni var Menntaskólanum á Ísafirði afhentir tveir bilanagreinar frá Félagi vestfirskra rafverktaka, með stuðningi frá Samtökum rafverktaka (SART) og fjölda fyrirtækja á svæðinu. Gjöfin, sem er að verðmæti um 2 milljónir króna, er mikilvæg viðbót við kennsluaðstöðu skólans og mun nýtast nemendum í rafiðngreinum vel.

Að gjöfinni standa fyrirtækin Póllinn, Rafskaut, Rafverk AG, Eyfaraf, ÓK raf, Kalli Raf og Grundarorka, auk SART, Smith & Norland, Orkubús Vestfjarða, Verkís, Íslenska kalkþörungafélagsins og Ístækni.

Gjafaraðilar lögðu áherslu á mikilvægi þess að styðja við iðnmenntun og efla tengsl skóla og atvinnulífs. Gjöfin er liður í að bæta aðstöðu nemenda og undirbúa þau betur fyrir störf í faginu, en eftirspurn eftir rafvirkjum hefur farið vaxandi á undanförnum árum.

Heiðrún Tryggvadóttir, skólameistari, þakkaði fyrir gjöfina og þann hlýhug sem felst í stuðningi fyrirtækjanna við skólann og nemendur hans. Það skiptir skólann miklu máli að fyrirtæki á svæðinu sé tilbúin að aðstoða við að gera aðstæður sem bestar fyrir þá sem stunda nám hér.

Lesa má meira um málið á bb.is hér.