MARKMIÐ
- Að auka vellíðan nemenda
- Að styrkja sjálfstraust
- Að ýta undir jákvæða lífssýn og heilbrigða lífshætti
- Að efla félagsþroska og sjálfsvirðingu
LEIÐIR
- Við skólann skal starfar sérstakt forvarnarteymi sem skipað er; skólameistara,
aðstoðarskólameistara, áfangastjóra, námsráðgjöfum og félagsmálafulltrúa.
- Forvarnarteymi skipuleggi fræðslustarf í samvinnu við
starfsmenn, nemendur og forráðamenn þeirra.
- Forvarnarteymi stuðli að opinni umræðu um forvarnir meðal
nemenda, kennara og foreldra.
- Forvarnir og umræða um þær verði þáttur í sem flestum áföngum skólans.
- Félagslíf nemenda og viðburðir á vegum skólans skulu
einkennast af heilbrigðum lífsháttum og miða að því að efla félagsþroska
nemenda.
- Einelti er ofbeldi sem verður ekki liðið.
- Nemendur og starfsmenn skólans mega ekki vera undir áhrifum
áfengis eða annarra vímuefna í skólanum eða á lóð hans. Sama gildir um skemmtanir og ferðalög nemenda
á vegum skólans.
- Reykingar og notkun munntóbaks er bönnuð í skólanum og á lóð
hans.
- Hvers kyns áróður sem hvetur til neyslu áfengis og vímuefna
er bannaður í húsnæði eða samkomum á vegum skólans.
- Sérstakar verklagsreglur eru í gildi um dansleikjahald á
vegum skólans.
- Áhersla er lögð á upplýsingastreymi um heilbrigða lífshætti.
- Skólinn starfi með öðrum aðilum sem vinna að forvörnum innan
héraðs.
- Skólinn bjóði upp á áfallahjálp frá fagfólki þegar þörf
krefur.
Forvarnaráætlun er unnin í samstarfi við starfsfólk og
nemendur skólans. Stefnumörkunina skal endurskoða reglulega af:
- Forvarnarteymi
- Skólaráði
- Kennarafundi