Foreldraráð Menntaskólans á Ísafirði hélt fund 27. janúar þar sem fjallað var um hlutverk foreldraráðs, samstarf heimila og skóla, nám og velferð nemenda.
Á fundinum var áréttað að foreldraráð er lögbundinn, ráðgefandi samstarfsvettvangur.
Rætt var meðal annars um viðburðahald innan skólans og stöðu nemenda en fram kom að foreldrar og nemendur væru almennt ánægðir með skólann.
Vaxandi áhyggjur eru af aukinni áhættuhegðun ungmenna og í kjölfarið á þeirri umræðu var samþykkt að senda ályktun til vínveitingastaða á svæðinu þar sem hvatt er til þess að áfengi verði ekki afgreitt til ungmenna undir 20 ára aldri. Ályktunin verður einnig send til lögreglu.
Einnig var rætt um ábyrgð foreldra varðandi eftirlitslaus partý í heimahúsum.
Fundurinn er liður í reglubundnu starfi foreldraráðs og undirstrikar mikilvægi virks samstarfs heimila og skóla í þágu nemenda